Innlent | mbl | 13.5.2026 | 15:25 Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna „Þó er tæknivæðing skólanna farin á fullt skrið, jafnvel niður í leikskólastig, án þess að við höfum spurt okkur hvað við séum að gefa upp í skiptum fyrir tæknina,“ skrifar kennarinn. Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Einkunnirnar ekki til hjá borginni Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Samræmd próf eina leiðin Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B » Fleiri tengdar fréttir Þeim nemendum fer fjölgandi sem koma í framhaldsskóla með ófullnægjandi undirbúningi úr grunnskóla. Þetta segir Þórunn Steindórsdóttir, framhaldsskólakennari með langa reynslu af kennslu á báðum skólastigum, en hún skrifar um þetta grein í Morgunblaðinu í dag. „Orðaforði er af skornum skammti, vinnubrögð slök og metnaður fyrir námi oft lítill,“ skrifar Þórunn og bendir á að þetta sé ekki tilviljun, heldur afleiðing margra þátta sem of lengi hafi verið horft fram hjá. Frétt af mbl.is Prófessorinn ranghvolfdi augunum á Íslandi Námskröfur minnkað „Vandinn er margþættur og sökin liggur ekki hjá einum aðila. Þegar stefnan um skóla án aðgreiningar var innleidd var skólunum lofað fjármunum og björgum til að takast á við fjölbreyttari nemendahópa. Það hefur ekki gengið fyllilega eftir, sem gerir skólum illmögulegt að uppfylla þessa þó fínu stefnu,“ skrifar Þórunn. „Afleiðingin hefur verið sú að námskröfur hafa almennt minnkað, kennsluaðferðir sem skiluðu árangri eru nú taldar of erfiðar eða bara leiðinlegar og í auknum mæli er ætlast til þess að kennararnir gegni hlutverkum sálfræðings, þroskaþjálfa og iðjuþjálfa, án þess að hafa forsendur til þess.“ Á sama tíma hafi heimanám nánast horfið, að kröfu foreldra, og þar með sú þjálfun sem nemendur þurfi til að festa námsefni í minni, en heimanám sé líka til þess fallið að börn þrói með sér sjálfstæði og ábyrgð. Frétt af mbl.is Ný lög draga úr vægi námsárangurs barna Þórunn bendir á að rannsókn eftir rannsókn hafi sýnt fram á skaðleg áhrif mikillar skjánotkunar á þroska barna. mbl.is/Hari Börnin svipt tækifæri til þroska „Uppeldisaðferðir hafa breyst – sumt til hins betra, annað ekki. Sú þróun sem á ensku nefnist „soft parenting“ hefur að vissu leyti hjálpað börnum að þekkja og skilja tilfinningar sínar. En hún hefur líka skapað kynslóð sem á erfitt með að þola mótlæti, þekkir réttindi sín vel en skyldurnar hafa oft fallið í gleymskunnar dá. Börn og unglingar telja sig ekki bera ábyrgð á eigin árangri,“ skrifar Þórunn og tekur dæmi: „„Ætlar þú að fella mig?“, spurning sem framhaldsskólakennarar heyra oft, endurspeglar þessa hugsun með skýrum hætti. Nemandinn telur árangur sinn vera í höndum kennarans, ekki sínum eigin. Hinir fullorðnu hafa um of rutt áskorunum úr vegi í stað þess að hjálpa börnunum að takast á við þær sjálf. En þegar við gerum það sviptum við þau tækifæri til þroska.“ Frétt af mbl.is Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Hverju fórnum við í skiptum fyrir tæknina? Þórunn bendir á að kynslóðirnar sem nú vaxi úr grasi hafi aldrei þekkt heim án snjalltækja. „Það eru gagnleg tæki, upp að vissu marki. En rannsókn á eftir rannsókn hefur sýnt skaðleg áhrif mikillar skjánotkunar á þroska barna, sérstaklega þegar hún hefst snemma. Einbeitni fer minnkandi, lestur líður fyrir, minnið veikist og félagsleg samskipti þroskast síður. Þó er tæknivæðing skólanna farin á fullt skrið, jafnvel niður í leikskólastig, án þess að við höfum spurt okkur hvað við séum að gefa upp í skiptum fyrir tæknina. Nemendur skrifa allt í tölvur, en vita svo ekki hvar þeir finna skjalið aftur og eru ekki endilega færari til að leysa vandamál en áður.“ Frétt af mbl.is Skólayfirvöld axli ábyrgð Skólinn ekki í fyrirrúmi Loks segir hún það ekki bæta úr hvernig horft sé til skólans í samfélaginu. „Þegar frí og utanlandsferðir ganga jafnan fyrir mætingu í skóla, þegar tómstundaiðkun þykir mikilvægari en námsverkefni, þá eru börnin að taka mark á þeim skilaboðum: skólinn er ekki í fyrirrúmi. Einnig virðist lífsstíll framhaldsskólaungmenna flækjast fyrir þeim því flest þeirra vinna alltof mikið með skóla, sem eykur álag á þau og bitnar á náminu,“ skrifar Þórunn. „Lausnin felst ekki í því að benda hvert á annað. Hún felst í því að allir aðilar, foreldrar, kennarar, stjórnmálamenn og samfélagið í heild, gangist við þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir. Rannsóknirnar eru til. Við þurfum að nota þær og finna saman leiðir sem eru börnunum okkar í hag, áður en við stöndum frammi fyrir enn meiri erfiðleikum af þessum völdum og engir kennarar eftir í skólunum.“ Frétt af mbl.is Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Frétt af mbl.is Tíu mánaða bið, tuttugu „aðgerðir“ Frétt af mbl.is Brotalöm í kennaranámi gæti valdið skertu læsi Frétt af mbl.is Eftirlit með grunnskólum í skötulíki Frétt af mbl.is Skólar standast eftirlit sem ættu ekki að gera það Frétt af mbl.is Í engu samræmi við rétt fyrirkomulag Frétt af mbl.is Ekki ástæða til að breyta og bregðast við Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Segir góðmennskuna í raun vera grimmd Einkunnirnar ekki til hjá borginni Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Samræmd próf eina leiðin Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Fá stuðningsmenn Liverpool ósk sína uppfyllta? Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Varð vandræðaleg í beinni útsendingu „Mesta sem við höfum séð í sveitarstjórnarkosningum“ Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Var skárri en ekkert fyrir neytendur Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg Nýjast á mbl.is » Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Fá stuðningsmenn Liverpool ósk sína uppfyllta? Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Varð vandræðaleg í beinni útsendingu „Mesta sem við höfum séð í sveitarstjórnarkosningum“ Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur Var skárri en ekkert fyrir neytendur Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg