Innlent | Morgunblaðið | 7.4.2026 | 22:50 Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn ,,Það þarf geta varið sig getur komið sér vel í aðstæðum þegar erfitt er að komast í burtu," segir í bókun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hólmfríður María Ragnhildardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Fjarveran áhyggjuefni Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Miklu færri kennsludagar hér á landi Hafa loks yfirsýn yfir börn á skólaskyldualdri » Fleiri tengdar fréttir Ungmenni vilja að kennsla í sjálfsvörn verði innleidd fyrir nemendur í unglingadeild í öllum grunnskólum Reykjavíkur. Ástæðan er vaxandi ofbeldishegðun meðal ungs fólks á Íslandi, vopnaburður er tíðari og slagsmál gjarnan tekin upp og þeim dreift á samfélagsmiðlum. Börnin segjast ekki upplifa sig örugg, þá sérstaklega þegar þau eru ein á ferð. Tillaga þessi barst frá ungmennaráði Kjalarness og var tekin fyrir á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, þar sem henni var vísað frá. Í greinargerð með tillögu ungmennanna segir enn fremur að þau upplifi að ungt fólk verði meira vart við ofbeldið fremur en fullorðnir í ljósi þess að þeir fái ekki sama efni upp á samfélagsmiðlum og unglingar. „Af þessum sökum leggur ungmennaráð Kjalarness til að Reykjavíkurborg bregðist við með því að sjá nemendum á unglingastigi í grunnskólum Reykjavíkur fyrir kennslu í grunnþáttum sjálfsvarnar,“ segir þar að lokum. Frétt af mbl.is Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Tilkynningum fjölgað Aukin ofbeldismenning meðal barna er áhyggjuefni sem stjórnvöld reyna nú að sporna gegn. Aðgerðir voru kynntar sumarið 2024 og enn fleiri sumarið á eftir. Alvarleg ofbeldisatvik hafa verið að koma upp og tilkynningum til barnaverndar og lögreglu vegna ofbeldishegðunar barna hefur fjölgað. Eins og Morgunblaðið hefur fjallað um er ástandið þannig í sumum skólum að börn hafa ekki treyst sér í skólann vikum saman. Heilbrigðisráðuneytið stefnir að því að hefja skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum og koma á fót móttöku á Landspítala fyrir börn sem hafa verið beitt ofbeldi. „Kennsla í sjálfsvörn er ekki hluti af aðalnámskrá grunnskóla en aðalnámskrá er leiðarvísir sem stýrir allri menntun og kennslu í skólastarfi,“ segir í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna í fundargerðinni. Þar er enn fremur tekið fram að í almennum aðgerðum menntastefnu borgarinnar sé lögð rík áhersla á þætti sem styðja við markmið sjálfsvarnar í víðum skilningi. Frétt af mbl.is Börn þora ekki í skólann Bent á frístundakortið Meðal annars þrói Jafnréttisskólinn námsefni sem leggi áherslu á aldursviðeigandi fræðslu sem miðar að því að efla félags- og tilfinningafærni og samskipti. Þá er tekið fram að börn og ungmenni í Reykjavík geti nýtt frístundakortið sitt, sem nemur 75 þúsund krónum árlega, til að greiða fyrir sjálfsvarnarnámskeið eða bardagaíþróttir hjá viðurkenndum félögum. Í minnisblaði frá Steini Jóhannssyni, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs borgarinnar, segir jafnframt að núverandi aðgerðir borgarinnar í verkefninu Betri borg fyrir börn, almennar aðgerðir menntastefnu Reykjavíkurborgar og aðgerðir úr tillögum stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna, rími vel við niðurstöður rannsóknar frá síðasta ári úr tímaritinu The Lancet Child & Adolescent Health , eftir Little o.fl. „Rannsóknin er kerfisbundin samantekt sem var gerð til að uppfæra INSPIRE-ramma Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um aðgerðir gegn ofbeldi á börnum,“ segir í minnisblaði hans. Samkvæmt rannsókninni eru öruggt- og styðjandi skólaumhverfi, þjálfun í lífs- og félagsfærni og fræðsla um heilbrigð sambönd og valdeflingu ungmenna líklegust til að draga úr ofbeldi. „Aðgerðir Reykjavíkurborgar byggja á þeirri sýn að ofbeldisvarnir séu samþættar daglegu starfi í skólum og frístundum. Með því að efla félags- og tilfinningafærni, tryggja markvissa kyn- og kynjafræðslu og hvetja til þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi í gegnum frístundakortið eru stigin mikilvæg skref í átt að því að mæta óskum ungmenna um aukið öryggi og sjálfsvörn,“ segir í minnisblaðinu. Frétt af mbl.is Vék eftir árás drengjanna Tækifæri til að hlusta Í bókun Jóhönnu Dýrunnar Jónsdóttur, fulltrúa Viðreisnar í ráðinu, segir að hún hafi fullan skilning á að erfitt sé að innleiða sjálfsvörn í alla grunnskóla. Hún telur aftur á móti að hér sé tækifæri til að hlusta og opna dyr. „Þegar litið er til aukinnar áhættuhegðunar sem hefur mikið birst síðastliðin misseri er mikilvægt að skoða allar leiðir til að bæta líf ungmenna.“ Áheyrnarfulltrúa Reykjavíkurráðs ungmenna fannst leiðinlegt að tillögu ungmennaráðs Kjalarness hefði verið hafnað af borgarfulltrúunum. „Ofbeldi hjá ungmennum hefur aukist gífurlega síðustu ár og kennsla í sjálfsvörnum er mikilvægur liður í að sporna gegn því,“ segir í bókun hans. „Það að geta varið sig getur komið sér vel í aðstæðum þegar erfitt er að komast í burtu. Á meðan það er ekki kennt í grunnskólum þá munu einungis sum en ekki öll geta varið sig á öruggan hátt. Reykjavíkurborg er nú þegar að fara í góðar aðgerðir en það er alltaf hægt að gera betur.“ Ofbeldismenning meðal barna Sumarið 2024 kynntu stjórnvöld aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna vegna merkja um að ofbeldismenning væri að þróast hérlendis. Þróunin var sögð áhyggjuefni sem þyrfti að bregðast við. Fjöldi tilkynninga til barnaverndar um að barn beiti ofbeldi ríflega tvöfaldaðist á árunum 2016-2023 eða úr 461 tilviki í 1.072. Þá tvöfaldaðist fjöldi grunaðra undir 18 ára í líkamsmeiðingarmálum tilkynntum til lögreglu frá 2016 til 2023 eða úr 95 tilkynningum í 186. Síðasta sumar voru fleiri aðgerðir kynntar en ný stöðutaka aðgerðahóps sýndi nauðsyn þess að halda áfram. Í skýrslu hópsins kom meðal annars fram að öryggistilfinning barna sem búa við erfiða fjárhagsstöðu eða eru með erlendan bakgrunn hefði dregist saman, stúlkur upplifðu minna öryggi en drengir og tilkynningum til barnaverndar hefði áfram fjölgað, sérstaklega vegna áhættuhegðunar barna. Þá fjölgaði verulega tilkynningum vegna vímuefnaneyslu barna og vegna ofbeldis sem börn beita sjálf. Frétt af mbl.is Athugasemd frá menntamálaráðherra Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Fjarveran áhyggjuefni Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Miklu færri kennsludagar hér á landi Hafa loks yfirsýn yfir börn á skólaskyldualdri » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Við vinnum leikinn fyrir þá Fimm ensk lið í Meistaradeildinni Frestar árásum á Íran Ef ég á ekki góðan dag er hann klár, og öfugt Umræðan Áttavitinn þarf að virka ESB-aðild er annars eðlis en annað alþjóðasamstarf Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrír fá 5 ár fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot Trump: „Öll siðmenning verður þurrkuð út í nótt“ Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Hverju er Trump að hóta? Mest lesið Í gær Í vikunni Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Bíll valt á Hellisheiði Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Líkur á eldingum í kvöld Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Við vinnum leikinn fyrir þá Fimm ensk lið í Meistaradeildinni Frestar árásum á Íran Ef ég á ekki góðan dag er hann klár, og öfugt Umræðan Áttavitinn þarf að virka ESB-aðild er annars eðlis en annað alþjóðasamstarf Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Gerir aðra atlögu að NOAA Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum níðingi Mest lesið Í gær Í vikunni Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskul