Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samfélagið þarf að taka höndum saman

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.4.2026 | 14:40 Samfélagið þarf að taka höndum saman Helga Þórðardóttir. mbl.is/Karítas Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki „Ég skil ungmennin mjög vel, við hlustum og gerum það sem við getum til að koma í veg fyrir ofbeldi, en við höfum ekki tök á því að taka upp kennslu í sjálfsvörn þar sem það er ekki hluti af aðalnámskrá grunnskóla,“ segir Helga Þórðardóttir formaður skóla- og frístundaráðs um tillögu ungmennaráðs Kjalarness sem tekin var fyrir á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs en var vísað frá. Tillaga ungmennaráðsins gengur út á að tekin sé upp kennsla í sjálfsvörn í öllum grunnskólum borgarinnar og segir Helga að þótt ekki hafi verið hægt að samþykkja tillöguna þá líti meirihlutinn þessi mál mjög alvarlegum augum, hún hafi sjálf upplifað sem kennari ógnina sem af þessu stafar og það hafi verið ein af hennar fyrstu tillögum í borgarstjórn að vara við auknu ofbeldi meðal ungmenna. Frétt af mbl.is Nemendur vilja læra sjálfsvörn Áhyggjur hafa komið fram „Þegar við mynduðum þennan meirihluta settum við á fót stýrihóp til að móta tillögur sem skilaði tillögum til okkar í byrjun desember og eru sumar þeirra komnar til framkvæmda, eins og t.d. að lengja opnunartíma félagsmiðstöðva til að auka félagsfærni nemenda auk annarra aðgerða sem við erum byrjuð með.“ Helga segir þessar áhyggjur hafa komið fram þegar ungmennaráðin koma og funda í borgarstjórn og eins í skólaheimsóknum. „Þar koma fram áhyggjur nemenda yfir öryggi sínu á leið heim. Við höfum aukið samstarf við samfélagslögregluna og leggjum áherslu á námsefni um fræðslu um félags- og tilfinningafærni.“ Hún bendir á frístundastyrkinn og að opna möguleika á að börnin geti sótt styttri námskeið. Þurfum að taka þessar áhyggjur alvarlega Í umfjöllun um þessi mál má skynja ótta hjá börnum og unglingum. Hvernig viljið þið bregðast við því? „Við þurfum að hlusta og taka áhyggjur unglinganna alvarlega. Við getum hins vegar ekki gert allt sem börnin leggja til, en reynum að finna aðrar leiðir sem eru færar. Eins og ég sagði þá erum við að vinna með tillögur stýrihópsins og koma þeim í framkvæmd.“ Helga bendir á að þetta sé samfélagslegt verkefni og það sé ekki bara skólinn sem geti brugðist við þessu ástandi einn og sér. „Við þurfum sem samfélag að taka höndum saman, allir sem eiga í samskiptum við börn og ungmenni. Ég legg áherslu á að því miður er ekki alltaf hægt að samþykkja góðar tillögur eins og þessa,“ segir Helga Þórðardóttir, sem hrósaði ungmennunum fyrir góða framsetningu og málafylgju. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Svali leitar að íbúð til leigu í Reykjavík Kolmunnaveiðar á gráa svæðinu Samfélagið þarf að taka höndum saman Fékk átta ára dóm fyrir sérlega gróf brot Þak fauk af í heilu lagi Umræðan Áttavitinn þarf að virka ESB-aðild er annars eðlis en annað alþjóðasamstarf Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nemendur vilja læra sjálfsvörn Snýst um að bæta ímyndina út á við Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Lengra frá jörðinni en nokkru sinni áður Mest lesið Í gær Í vikunni Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Vaxandi óánægja með störf borgarstjóra Snýst um að bæta ímyndina út á við Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum níðingi Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Bíll valt á Hellisheiði Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Líkur á eldingum í kvöld Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Svali leitar að íbúð til leigu í Reykjavík Kolmunnaveiðar á gráa svæðinu Samfélagið þarf að taka höndum saman Fékk átta ára dóm fyrir sérlega gróf brot Þak fauk af í heilu lagi Umræðan Áttavitinn þarf að virka ESB-aðild er annars eðlis en annað alþjóðasamstarf Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vaxandi óánægja með störf borgarstjóra Innanlandsflugi seinkar Þrír fá 5 ár fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni Mest lesið Í gær Í vikunni Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Vaxandi óánægja með störf borgarstjóra Snýst um að bæta ímyndina út á við Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum níðingi Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Bíll valt á Hellisheiði Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Líkur á eldingum í kvöld Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun

Share this article