Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sjálfsvarnarnám ekki leiðin

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.4.2026 | 7:00 Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Símon Geir Geirsson samfélagslögreglumaður. Ljósmynd/Aðsend Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki „Hugmynd um sjálfsvarnarkennslu í grunnskólum er fjarri okkur og við mælum frekar með fræðslu, minni skjánotkun og meiri samskiptum. Það er ekkert að því að geta varið sig en það er ekki það sem við þurfum í þetta samfélag. Við þurfum pásu frá skjánum og þessum samfélagsmiðlum því þeir gefa ranga mynd af því góða og örugga samfélagi sem við búum í.“ Svo segja Unnar Þór Bjarnason, verkefnastjóri samfélagslögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, og Símon Geir Geirsson lögreglufulltrúi vegna tillögu um að sjálfsvarnarkennsla verði sett í aðalnámskrá grunnskóla. Samfélagslögreglan er verkefni sem miðar að því að byggja upp jákvæð tengsl lögreglunnar við samfélagið og vinna með því að lausn vandamála sem tengjast almannaöryggi. Þeir segja að það sé vissulega áhyggjuefni ef börn og ungmenni finna til ótta í nærumhverfi sínu en benda á að sá ótti sé frekar tilkominn af mikilli skjánotkun á ofbeldisefni en raunverulegri ógn í samfélagi okkar. „Við hörmum það ef börn upplifa ótta í nærumhverfi sínu, við viljum að þau upplifi öryggi og rannsóknir hafa sýnt að Ísland er eitt af öruggustu löndum í heimi. Því miður horfa börn á of mikið af alls konar efni á samfélagsmiðlum, sem getur ýtt undir ótta. Við höfum verið ötul við að fara í skólana, tala við börnin og segja þeim að þau geti alltaf leitað til lögreglunnar og tilkynnt það sem veldur þeim ótta.“ Þeir benda á að á samfélagsmiðlum sé alls konar varhugavert efni og „algoriþminn“ sjái til þess að ef krakkar leita uppi ofbeldisfullt efni komi meira efni af sama toga upp hjá þeim. Þá fái slíkt efni oft mikla umfjöllun í fjölmiðlum, og getur það vakið ótta að heyra af ofbeldisbrotum og tilefnislausum árásum. Sá ótti nær einnig til eldra fólks, og segir Unnar að á undanförnum vikum hafi verið lögð áhersla á að fræða eldra fólk sem spyrji sig hvernig eigi að verja sig ef á það verði ráðist. „Fólk heldur að við búum annars staðar en við búum út af því sem það sér í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum og upplifir að það sé í raunverulegri hættu við að ganga úti á götu og vill fá að vita hvernig það á að verja sig gagnvart yfirvofandi ógn. Tölurnar sýna að það eru mjög litlar líkur á því að fólk verði fyrir slíkum árásum. Við þurfum að leggja áherslu á að við búum í öruggu umhverfi og það er mikilvægara að koma þeim skilaboðum til skila en að kenna sjálfsvörn og selja kylfur úti í búð,“ segir Unnar. Símon bætir við að ef mikið sé fylgst með ofbeldisefni í símanum á hverjum degi sendi algoriþminn endalaust meira efni, sem veki enn frekari ótta. Þá getur fólk farið að trúa því að ungdómurinn sé að fara til fjandans, sem er víðs fjarri veruleikanum. „Við eigum ofboðslega flott ungmenni og skynsama krakka. Við mætum í lífsleikni í grunnskólunum sem er í aðalnámskrá þar sem við ræðum við krakkana um hvernig hægt er að tala saman og leysa málin þannig, því það er mikilvægara en margt annað.“ Þeir segjast skilja hugsunina á bak við sjálfsvarnarkennslu en það sé ekki leiðin. Foreldrarnir þurfi að vera meðvitaðir um að halda börnunum sem mest frá skjánum, fylgjast með því hvað þar fer fram og tala meira saman. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Varað við hvassviðri í Öræfum Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Sú þekktasta miðlaði til Íslendinga Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Andlát: Elva Dagmar Simundsson Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn Myndskeið: Yfirlýsing Melaniu Trump í heild sinni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Mest lesið Í gær Í vikunni Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Starfsfólk Norðuráls fær undanþágu í göngin Snæfellsbær framlengir framboðsfrest Stjórn Sólheima segir upp þjónustusamning Sjö fá 19 milljónir „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Kort sýnir vegakerfi í lamasessi Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Nýjast á mbl.is » Varað við hvassviðri í Öræfum Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Sú þekktasta miðlaði til Íslendinga Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Andlát: Elva Dagmar Simundsson Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Styrkir samtökin um 25 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Starfsfólk Norðuráls fær undanþágu í göngin Snæfellsbær framlengir framboðsfrest Stjórn Sólheima segir upp þjónustusamning Sjö fá 19 milljónir „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Kort sýnir vegakerfi í lamasessi Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu

Share this article