Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir eldsvoða í bílskúr

Read Full Article →

Dælubíll og sjúkraflutningabíll.RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Tveir voru fluttir á bráðamóttöku til skoðunar eftir að eldur kom upp í bílskúr við íbúðarhús í Kópavogi skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Ekki er vitað um líðan þeirra en meiðsli þeirra voru talin minniháttar samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Allir dælubílar frá fjórum slökkvistöðvum á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á vettvang. Hætta var á að eldur bærist út svo ráða þurfti niðurlögum eldsins og einnig beita kælingu svo eldurinn bærist ekki í nærliggjandi íbúðarhús. Slökkvistarfi lauk um tveimur tímum síðar. Talsvert tjón var á bílskúrnum en eldsupptök eru ókunn.

Share this article