Tæknideild lögreglu rannsakar orsakir eldsins sem kviknaði í bílskúr við íbúðarhús í Kópavogi í nótt. Engin alvarleg slys urðu á fólki en bílskúrinn er mjög illa farinn. „Það er verið að reyna að finna út hvort þetta sé bilun eða eitthvað annað. Við getum lítið staðfest annað en að eldur kom upp,“ segir Jónatan Guðnason, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tveir voru fluttir á bráðamóttöku eftir að eldurinn kom upp. Samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru meiðsli þeirra talin minniháttar. Allir dælubílar frá fjórum slökkvistöðvum á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á vettvang og slökkvistarfi lauk um tveimur tímum síðar. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu urðu hvorki skemmdir né reykskemmdir á íbúðarhúsinu sjálfu fyrir utan sprungur á ytra gleri glugga sem snúa að bílskúrnum.