- What: Húrra retail store closing
- Impact: Local business closure in Reykjavik
Síðustu verslun Húrra við Hverfisgötu verður lokað í lok apríl, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu á samfélagsmiðlum. „Eftir langa og eftirminnilega vegferð höfum við tekið þá erfiðu ákvörðun að loka Húrra og versluninni okkar við Hverfisgötu í lok apríl. Það er erfitt að kveðja eitthvað sem hefur verið svona stór hluti af lífi okkar en allt hefur sitt upphaf og endi,“ segir í færslu Húrra á Facebook. Í tilkynningunni er rifjað upp að Húrra hafi hafist sem hugmynd tveggja vina sem töldu ákveðnar vörur, vörumerki og upplifun skorta í Reykjavík. Með tímanum hafi verslunin hins vegar orðið að stærra fyrirbæri og sett svip sinn á borgarlífið, auk þess að vera hluti af verslunar- og tískusenu Reykjavíkur í rúman áratug. Sjá einnig Húrra lokar í Kringlunni og Smáralind Forsvarsmenn Húrra segjast stoltir af því sem byggt var upp og þakklátir viðskiptavinum, samstarfsaðilum og starfsfólki fyrir þátt þeirra í því samfélagi sem varð til í kringum reksturinn. Þá kemur einnig fram að á síðustu mánuðum hafi verið unnið hörðum höndum að því að halda rekstrinum gangandi, en að lokum hafi verið tekin sú þungbæra ákvörðun að loka versluninni á Hverfisgötu. Næstu vikur verða þær síðustu í sögu Húrra. Verslunin verður opin á meðan birgðir endast og verða allar vörur seldar með helmingsafslætti. Fyrirtækið hvetur fólk til að koma við, hjálpa til við að klára birgðirnar og kveðja Húrra Reykjavík í síðasta sinn. Í lok tilkynningarinnar þakkar Húrra öllum þeim sem hafa lagt leið sína í verslunina í gegnum árin og segir stuðning, tryggð og velvild viðskiptavina hafa haldið rekstrinum gangandi allan þennan tíma.