- What: Húrra Reykjavík closes its last store
- Impact: Retail sector challenges in Iceland
Eftir tæplega tólf ára samfelldan rekstur þurfti teymið á bak við Húrra Reykjavík að taka þá þungu ákvörðun að loka síðustu verslun sinni á Hverfisgötu. Að sögn Sindra Snæs Jenssonar, eins forsvarsmanna verslunarinnar, er niðurstaðan fyrst og fremst afleiðing sífellt erfiðara rekstrarumhverfis sem hafi versnað jafnt og þétt á undanförnum árum. Sú þróun hafi orðið til þess að sjálfstæðum sérverslunum sé nú nær ókleift að standa undir starfsemi sinni. Frá upphafi hafi Húrra starfað í harðri samkeppni við erlendar netverslanir, en á síðustu árum hafi sú samkeppni vaxið langt umfram það sem íslenskar sérverslanir ráði við. Erlendu aðilarnir starfi við allt annað viðskiptaumhverfi, með minni yfirbyggingu, lægri starfsmannakostnað og allt aðrar forsendur til að keyra verð og afslætti. Á sama tíma hafi markaðurinn þróast með þeim hætti að verðsamkeppni og stöðug afsláttarherferð setji sífellt meiri þrýsting á innlenda aðila sem byggja rekstur sinn á þjónustu, sérstöðu og vandaðri verslunarupplifun. „Við erum ekki lengur bara að keppa við aðrar íslenskar verslanir. Við erum að keppa við erlenda netrisa sem starfa á allt öðrum forsendum. Þegar erlendir aðilar geta sótt svona hratt inn á markaðinn segir það mjög mikið um það hvernig samkeppnisumhverfið hefur breyst,“ segir Sindri. Sjá einnig Síðasta verslun Húrra lokar í lok mánaðar Hann segir jafnframt að frá stofnun hafi verið lögð rík áhersla á að byggja upp traustan og tryggan viðskiptavinahóp, samhliða því að gera verslunina að lifandi hluta af borgarlífinu og gefa eitthvað til baka til samfélagsins. „Við höfum frá upphafi lagt okkur fram um að byggja upp góð og traust tengsl við viðskiptavini okkar og á sama tíma reynt að gera verslunina að einhverju meira en bara sölustað heldur að stað sem gæfi líka eitthvað til baka til borgarinnar,“ segir hann. Samkvæmt Sindra versnaði staðan verulega á síðustu mánuðum. Desembersalan var undir væntingum og fyrstu mánuðir þessa árs enn þyngri. Sú þróun haldist í hendur við stöðu hagkerfisins hér á landi, þar sem háir vextir og verðbólga hafi þrengt að heimilum og orðið til þess að margir hafi haldið fastar um budduna. Verslun Húrra við Hverfisgötu verður lokað í lok mánaðar. Allar vörur verða seldar með helmingsafslætti á meðan birgðir endast. Hann bendir á að Húrra sé langt frá því að vera eina fyrirtækið sem berjist í bökkum við þessar aðstæður. Á undanförnum misserum hafi rekstrarumhverfi íslenskrar verslunar almennt þrengst, framlegð veikst og svigrúm innlendra aðila minnkað. Sú þróun sýni að um kerfislægt ástand sé að ræða á markaði þar sem ytri aðstæður hafi orðið sífellt þyngri, sérstaklega fyrir sjálfstæð fyrirtæki sem standa undir húsaleigu, launakostnaði og öðrum föstum rekstrarliðum hér innanlands. Sindri segir að innan Húrra hafi margt verið reynt til að mæta þessum aðstæðum. Reksturinn hafi verið endurskoðaður, félagið endurskipulagt og starfsemin sköluð niður í þeim tilgangi að laga hana að breyttum veruleika. Þrátt fyrir það hafi niðurstaðan á endanum alltaf verið sú sama: ytri aðstæður væru orðnar svo þungar að reksturinn næði ekki lengur að bera sig. „Við höfum reynt allt sem hægt var að reyna. Við höfum lagað okkur að nýjum veruleika aftur og aftur, endurskipulagt, minnkað umsvif og farið í gegnum erfiðar breytingar. En þegar salan fer niður, framlegðin fer niður og kostnaðurinn heldur áfram upp, þá verður einfaldlega mjög lítið svigrúm eftir.“ Að lokum hafi þó ekki verið hægt að komast hjá hinu óumflýjanlega og því hafi verið tekin ákvörðun um að loka síðustu versluninni áður en það yrði um seinan. Næstu vikur verða þær síðustu í sögu Húrra. Verslunin verður opin á meðan birgðir endast og verða allar vörur seldar með helmingsafslætti. Markmiðið hafi meðal annars verið að ljúka rekstrinum með ábyrgum hætti og standa eins vel og kostur var við bakið á því fólki sem að honum kom. „Þetta er auðvitað þungbær ákvörðun, en því miður sú eina sem við gátum tekið á þessum tímapunkti til að reyna að loka þessum kafla með eins ábyrgum hætti og unnt var,“ segir Sindri. Húrra mun á næstu dögum halda verslun sinni opinni á meðan birgðir endast og hvetur Sindri trygga viðskiptavini síðustu ára til að koma við í síðasta sinn.