Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Líklegra að starfsfólki fækki

  • What: More company leaders expect a decline in staff
  • Impact: A survey shows a shift in expectations about workforce changes
Read Full Article →

Mun fleiri stjórnendur iðnfyrirtækja telja nú að aðstæður í efnahagslífinu séu slæmar fyrir fyrirtæki þeirra en þeir sem telja þær góðar. Þetta er alger viðsnúningur frá því fyrir ári þegar þessu var öfugt farið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greiningu SI sem byggir á niðurstöðum könnunar sem Outcome framkvæmdi meðal stjórnenda iðnfyrirtækja innan samtakanna í febrúar og mars á þessu ári. Í könnuninni voru stjórnendur einnig spurðir að því hvernig horfir með fjölda starfsmanna í fyrirtæki þeirra á næstu 12 mánuðum. Í fyrsta sinn frá heimsfaraldursárinu 2020 segir hærra hlutfall stjórnenda að starfsmönnum muni fækka en fjölga. Hlutfall þeirra sem segja að þeim muni fækka er 23% en 20% segja að þeim muni fjölga. Er þetta talsverð breyting frá því í fyrra þegar 13% sögðu að starfsmönnum myndi fækka en 28% að þeim myndi fjölga. Niðurstaðan bendir til þess að á næstu tólf mánuðum muni iðnfyrirtæki fækka starfsfólki til að mæta samdrætti. Í greiningu SI segir að sú þróun sé raunar þegar hafin; störfum í greininni hafi fækkað, atvinnuleysi aukist og lausum störfum fækkað. Þrátt fyrir að starfsfólki fækki sé enn talsverður skortur á mannauði með rétta færni og menntun í greinum iðnaðarins. Hins vegar hafi dregið úr skortinum undanfarið og rekja megi það til þess samdráttar sem fyrirtæki í iðnaði hafi orðið fyrir. Um 30% stjórnenda segja að það sé skortur á starfsfólki í fyrirtæki þeirra núna. Það hlutfall hefur farið lækkandi frá 2023 þegar 48% sögðu skort á starfsfólki vera viðvarandi. Að sama skapi hefur hlutfall þeirra sem telja að það sé nægt framboð af starfsfólki hækkað og mælist það nú 63% samanborið við 55% í fyrra. Það hlutfall hefur hækkað síðustu ár en það var 44% árið 2022. Í könnuninni voru stjórnendur einnig beðnir um að svara því hvers konar starfsfólk skorti helst og sögðu 57% að það væri iðnmenntað starfsfólk. Það hlutfall hefur lækkað frá árinu 2025 þegar 64% stjórnenda iðnfyrirtækja sögðu að það skorti iðnmenntað starfsfólk. Um 24% nefna vöntun á háskólamenntuðu starfsfólki; það hlutfall hækkaði aðeins á milli ára en það var 20% árið 2025. Þá segja 9% að það sé skortur á ófaglærðu starfsfólki en það hefur farið lækkandi síðustu ár og mældist 13% árið 2025. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article