- What: Snap announces 1,000 layoffs
- Impact: 16% of workforce affected
Bandaríska samfélagsmiðlafyrirtækið Snap, sem rekur meðal annar Snapchat, hyggst segja upp 1.000 starfsmönnum, eða um 16% af heildarvinnuafli fyrirtækisins. Á vef WSJ segir að hópuppsögnin sé gerð til að bæta rekstrarafkomu og auka hagkvæmni. Evan Spiegel, forstjóri Snap, sendi minnisblað til starfsmanna fyrirtækisins þar sem þeim var tilkynnt um ákvörðunina en hlutabréf Snap hækkuðu um 10% í utanþingsviðskiptum í morgun. Gert er ráð fyrir að aðgerðirnar muni lækka árlegan rekstrarkostnað fyrirtækisins um meira en 500 milljónir dala á fyrri hluta þessa árs. Fjárfestafyrirtækið Irenic Capital Management, sem á 2,5% hlut í Snap, hvatti stjórnendur fyrirtækisins í síðasta mánuði til að grípa til aðgerða til að bæta virði félagsins. Þar á meðal voru tillögur um fækkun starfsmanna og mögulega lokun á Specs-einingu félagsins. Sjá einnig Snap segir upp 10% af starfsmönnum Gengi Snap hefur lækkað um meira en 30% það sem af er ári og er þetta ekki í fyrsta sinn sem fyrirtækið grípur til slíkra hagræðingaraðgerða. Árið 2022 fækkaði félagið starfsmönnum um 20% vegna samdráttar í auglýsingatekjum og var 10% af starfsfólki Snap sagt upp aftur árið 2024 á heimsvísu.