- What: BSO leasing managers join Hreyfil
- Impact: Business merger in Akureyri
Innlent | Morgunblaðið | 11.4.2026 | 20:25 Bílstjórar BSO ganga til liðs við Hreyfil Bílstjórarnir við BSO, f.v. Karl Ísleifsson í Múlaradíó, Sverrir Þór Kristjánsson, varaformaður stjórnar Hreyfils, Kjartan Halldór Einarsson stjórnarformaður Hreyfils, Haraldur Axel Gunnarsson framkvæmdastjóri Hreyfils og Smári Ólafsson stjórnarformaður BSO. mbl.is/Margrét Þóra Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Setja bókamerki „Við erum að færa út kvíarnar og höslum okkur nú völl í höfuðstað Norðurlands, en við höfum aldrei áður verið með starfsemi á landsbyggðinni. Það verður gaman að spreyta sig á nýjum stað fyrir norðan,“ segir Haraldur Axel Gunnarsson framkvæmdastjóri Hreyfils. Allir leigubílstjórar BSO á Akureyri ganga um næstu mánaðamót, þann 1. maí, til liðs við Hreyfil. Þeir eru 16 talsins. Mikil óvissa hefur undanfarin misseri ríkt um starfsemi leigubílastöðvarinnar BSO á Akureyri, en starfsstöðin hefur um áratugaskeið verið til húsa við Strandgötu. BSO-húsið var eitt af kennileitum Akureyrarbæjar. Það þarf nú að víkja, því fram undan er bygging á þremur fimm hæða húsum með verslun og þjónustu á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum. „Við teljum að þetta sé góð lausn og hlökkum til að takast á við verkefni okkar undir merkjum Hreyfils. Það er góð stemmning í okkar hópi fyrir þessum breytingum,“ segir Smári Ólafsson stjórnarformaður BSO. Hann segir málin hafa verið skoðuð í þaula og lausna leitað þegar ljóst var að húsakynni stöðvarinnar yrðu að víkja fyrir nýbyggingum. Eftir að byggingaréttur á reitnum var seldur og ljóst varð að hafist yrði handa við framkvæmdir síðar á árinu fór þunginn vaxandi. Hreyfill haslar sér völl á landsbyggðinni Hreyfill lýsti yfir áhuga á að hefja starfsemi norðan heiða og niðurstaðan er sú að BSO verður lagt niður og bílstjórar munu frá og með næstu mánaðamótum aka um sem bílstjórar Hreyfils. „Við hlökkum til að takast á við ný verkefni fyrir norðan. Á Akureyri eru góðir og reyndir bílstjórar og við erum ánægð með að fá þá til liðs við okkur. Við erum stolt af því að stíga okkar fyrstu skref á landsbyggðinni, en þetta er stór áfangi fyrir okkur. Við horfum með bjartsýni til framtíðar,“ segir Haraldur Axel. Hann bætir við að gott sé fyrir viðskiptavini Hreyfils á höfuðborgarsvæðinu að geta gengið að bílum fyrirtækisins vísum þegar þeir eigi leið um Akureyri auk þess sem nýir viðskiptavinir séu boðnir velkomnir. Talsverðar breytingar verða í kjölfar þess að BSO-bílstjórar verða Hreyfilsmenn, en þeir eru þessa dagana að innleiða smáforit, Hreyfilsappið, sem kynnt hefur verið að undanförnu. Með því er hægt að panta bíl og fá um leið upplýsingar um kostnað við fyrirhugaða ferð, sem og býður forritið upp á að greiða ferðina fyrir fram. Viðskiptavinir geta pantað ferð með talsverðum fyrirvara, allt að viku, og þá sjá menn einnig hvar bílinn er staddur og hvenær hann rennir í hlað hjá viðkomandi. „Þetta eru miklar breytingar fyrir okkur en við erum tilbúnir í að takast á við nýjungar og hlökkum bara til,“ segir Smári og nefnir að gamla góða BSO-númerið verði áfram virkt. Þeir sem kjósi að hringja eftir bíl geti hringt í það eða Hreyfilsnúmerið. Bílstjórar norðan heiða leita að heppilegum stað þar sem hægt er að koma upp lítilli kaffistofu með snyrtingu. „Við erum að leita en engin niðurstaða er komin enn. Við þurfum alls ekki mikið pláss,“ segir Smári. Krissa hefur staðið vaktina í verslun BSO við Strandgötu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tindastóll - ÍR, staðan er 95:59 Valur - Keflavík, staðan er 33:40 Stórt kjaftshögg fyrir Arsenal Lágflugið tilkynnt til lögreglu og samgöngustofu Lúxushótel Birgittu Lífar er þriggja stjörnu hótel Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Aðgerðunum fálega tekið Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » Tindastóll - ÍR, staðan er 95:59 Valur - Keflavík, staðan er 33:40 Stórt kjaftshögg fyrir Arsenal Lágflugið tilkynnt til lögreglu og samgöngustofu Lúxushótel Birgittu Lífar er þriggja stjörnu hótel Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðgerðunum fálega tekið Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn Geimfarið lenti án vandræða Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi