- What: 90 employees laid off in three company restructurings
- Impact: Employees affected in manufacturing and retail sectors
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Brynjólfur Þór Guðmundsson 90 starfsmenn misstu vinnuna í hópuppsögnum í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vinnumálastofnunar. Stofnuninni var tilkynnt um þrennar hópuppsagnir í mars. 60 var sagt upp í tveimur hópuppsögnum í mannvirkjagerð. 30 var sagt upp í einni hópuppsögn í verslun. Fólkið er með misjafnlega langan uppsagnarfrest. Uppsagnirnar taka því gildi á tímabilinu frá maí til júlí. Iðnaðarmaður við störf. Mynd úr safni. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 10 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Skothvellir nærri ísraelsku sendiskrifstofunni í Istanbúl Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Skothvellir heyrðust nærri ísraelsku sendiskrifstofunni í Istanbúl í Tyrklandi rétt eftir klukkan tíu. Samkvæmt staðarmiðlum eru þrír látnir og tveir lögreglumenn særðir. Dómsmálaráðuneyti Tyrklands hefur staðfest að það sé að rannsaka skotárás nærri ísraelsku sendiskrifstofunni en hefur ekki gefið frekari upplýsingar. Á vef breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að engir ísraelskir embættismenn séu í Tyrklandi á þessari stundu, hvorki á sendiskrifstofunni í Istanbúl né í sendiráðinu í Ankara. BBC hefur þetta eftir bæði Reuters og AFP-fréttaveitunni. Fyrir 43 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Einn handtekinn vegna kannabisræktunar í nágrenni Ísafjarðar Mist Þormóðsdóttir Grönvold Lögreglan á Vestfjörðum handtók einn eftir að upp komst um kannabisræktun í nágrenni Ísafjarðar í gær. Í tilkynningu segir að lögreglumenn hafi orðið varir við megna kannabislykt í eftirliti í gær. Þeir hafi rakið lyktina að húsi í nágrenninu og þegar þangað var komið kom í ljós að innandyra var „allnokkur“ kannabisræktun. Einn var handtekinn í kjölfarið og hin ræktuðu efni gerð upptæk ásamt ræktunarbúnaði. Lögreglumenn voru í eftirliti þegar þeir urðu varir við megna kannabislykt. Aðsent / Bartosz Kozik Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Varnarkerfið virkaði sem skyldi þegar eldingaveður olli rafmagnsleysi Vel gekk að koma kerfum aftur af stað eftir að eldingu laust niður í Búrfellslínu í gærkvöld, segja forsvarsmenn rafveitna. Öryggisstjóri Landsnets segir varnarkerfið hafa farið samstundis af stað og virkað sem skyldi. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fimleikar Sjáðu æfingar Thelmu í heimsbikarnum Myndskeið með gólfæfingum Thelmu Aðalsteinsdóttur í úrslitum í heimsbikarmóti í Egyptalandi um helgina hafa farið eins og eldur í sinu um netheima. Thelma endaði í 6. sæti á þessu sterka móti. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitaskipti hjá Byggðalistanum Byggðalistinn hefur kynnt framboðslista sinn fyrir kosningar í vor. Eyþór Fannar Sveinsson verður oddviti listans. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Börn drepin í drónaárásum Rússa og Úkraínumanna Rússar og Úkraínumenn héldu áfram drónaárásum í nótt og í morgun. Í það minnsta þrjú börn voru meðal þeirra sem voru drepin í árásunum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sósíalistar birta lista í borginni Framboðslisti Sósíalistaflokks Íslands vegna borgarstjórnarkosninga í vor liggur fyrir. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Óskar og Hörður ósammála: „Ætlarðu að segja - þú verður að borða úti á svölum“ Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR mætti í Bikarkvöld eftir sigur sinna manna gegn Val, 4-2. Hann ræddi við þau Hörð Magnússon, Helgu Margréti Höskuldsdóttur og Gunnar Birgisson um markvörðinn Arnar Frey Ólafsson. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Taíland Földu tæp tvö tonn af dópi undir káli Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglumenn fundu mikið magn fíkniefna í pallbíl sem var stöðvaður á laugardag. 900 kíló af ketamíni og 700 kíló af metamfetamíni fundust falin undir káli á palli bílsins. Ökumaðurinn sagðist hafa tekið að sér að flytja fíkniefnin gegn því að fá 100 þúsund baht greidd. Það er andvirði tæpra 400 þúsund króna. Hans bíður nú að lágmarki fimmtán ára fangelsisvist. Lögregla sagði að fíkniefnunum hefði verið smyglað inn í landið en sagði ekkert um það hvaðan þau hefðu komið. Lögreglumenn standa vörð við sýningu á fíkniefnunum. EPA / NARONG SANGNAK Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Ríkisútvarpið Vestfirðingum gafst tækifæri á að koma með hugmyndir inn í dagskrá Rásar 2 Hugmyndadagar RÚV eru haldnir tvisvar á ári, að hausti og vori, þar sem öllum landsmönnum gefst tækifæri á að koma með hugmyndir að dagskrárefni í miðla RÚV. Í ár voru hugmyndadagarnir í fyrsta skipti á faraldsfæti. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Margir vegir lokaðir fyrir norðan og austan Víðtækar vegalokanir eru á norðan- og austanverðu landinu. Unnið er að mokstri á vegum. Innanlandsflugi seinkar í morgunsárið. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvasst en heldur hlýtt Hitinn gæti farið í tíu stig í dag. Allhvasst verður þó framan af degi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Tveir drengir drepnir í gagnkvæmum drónaárásum Markús Þ. Þórhallsson Ellefu ára drengur var drepinn í drónaárás Rússlandshers á Dnipropetrovsk í Úkraínu og sjö ára drengur og foreldrar hans voru drepin í úkraínskri drónaárás á héraðið Vladimir í nótt. Íbúðahús í Odesu stórskemmt eftir loftárás 6. apríl. EPA / IGOR MASLOV Héraðsstjórinn segir á Telegram fimm ára systur hans liggja á sjúkrahúsi með brunasár. Herir beggja ríkja gerðu þungar árásir í nótt sem kveiktu elda, skemmdu byggingar og raforkulínur. Rússar hafa gert loftárásir meira og minna hverja nótt frá upphafi innrásarstríðsins og Úkraínumenn hafa lengi svarað í sömu mynt. Undanfarnar vikur hefur Úkraínuher aukið árásarþungann á orkuinnviði í Rússlandi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Orðum prýddur hermaður sakaður um grimmileg morð í Afganistan Einn virtasti fyrrverandi hermaður Ástralíu var handtekinn í morgun vegna gruns um að hafa myrt óvopnaða fanga meðan hann þjónaði í Afganistan á árunum 2009 til 2012. Alríkislögreglustjóri segir hans bíða ákæra fyrir stríðsglæpi. Hann neitar sök. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Vance heimsækir Orban í stuðningsskyni Bandaríski varaforsetinn JD Vance er á leið til fundar við ungverska forsætisráðherrann Viktor Orban, meðal annars til að færa honum stuðningskveðjur frá Donald Trump forseta í aðdraganda þingkosninga næsta sunnudag. Ósigur gæti beðið Orbans. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Úlfur sem beit konu í Hamborg frjáls ferða sinna Markús Þ. Þórhallsson Úlfinum var sleppt en þarf að bera eftirlitsbúnað. Mynd úr safni. dr.dk / Patrik Stollarz Úlfi hefur verið sleppt aftur út í náttúruna eftir að hann beit konu í þýsku borginni Hamborg í liðinni viku. Það var í fyrsta skipti í meira en þrjátíu ár sem manneskja verður fyrir barðinu á úlfi í Þýskalandi, samkvæmt umfjöllun Bild. Dýraverndaryfirvöld festu sendi á dýrið þannig að unnt verði að fylgjast með ferðum þess. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar segjast ekki láta undan afarkostum Trumps Bandaríkjaforseti hótar enn að gereyða innviðum Írans verði Hormússund ekki opnað. Stórfelldar árásir Bandaríkjahers gætu hafist í kvöld gangi Íranar ekki að afarkostum forsetans. Öryggisráðið greiðir atkvæði um tillögu um leið til opnunar sundsins. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Fjögurra daga heimför Artemis að hefjast Áhöfn Artemis II er á leið til jarðar að nýju eftir að hafa séð fjarhlið tunglsins og farið lengra út í geim en nokkur mannvera á undan þeim. Samband náðist að nýju við áhöfnina um miðnæturbil. Hún lýsti fjarhlið tunglsins nákvæmlega. 7. apríl 2026 kl. 0:30ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína WHO hættir brottflutningi særðra og sjúkra frá Gaza tímabundið Alþjóðaheilbrigðisstofnunin ætlar að rannsaka ástæður þess að starfsmaður á vegum hennar var drepinn á Gaza í gær. Ísraelskir hermenn skutu á fólksflutningabíl stofnunarinnar. Á meðan verður gert hlé á brottflutningi veikra Palestínumanna. 6. apríl 2026 kl. 23:26ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Aðalframkvæmdastjóri SÞ biður Bandaríkjaforseta að leggja ekki til atlögu að innviðum Írans Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna biðlar til Bandaríkjaforseta um að gera ekki þær þungu árásir sem hann hefur boðað á innviði í Íran. Þær séu almennt brot á alþjóðalögum og geti jafngilt stríðsglæpum. Íranir hafa sólarhring til að opna Hormús. 6. apríl 2026 kl. 22:48INNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Rafmagn komið á Mosfellsbæ Markús Þ. Þórhallsson Mosfellsbær að sumri. Rafmagnslaust var þar um nokkra hríð í kvöld. RÚV / Ragnar Visage Rafmagn er komið á gervallan Mosfellsbæ eftir bilun sem varði frá því á níunda tímanum í kvöld. Bilunin varð í aðveitustöð sem tengir hluta bæjarins sem hafði áhrif á hitaveituna. Í tilkynningu á vef Veitna segir að heitavatnsdælur komi smám saman inn og að eina til tvær klukkustundir taki fyrir þrýsting að byggjast upp að nýju á Kjalarnesi. 6. apríl 2026 kl. 22:16ÍÞRÓTTIR Körfubolti KR-ingar svöruðu Stjörnunni með sigri Jóhann Páll Ástvaldsson Linards skorar eitt af 31 stigi sínu. Hilmar Þór Norðfjörð KR jafnaði metin í einvígi sínu gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta eftir 91-82 sigur. Staðan er nú 1-1. KR byrjaði af miklum krafti og leiddi 20-14 eftir fyrsta leikhluta. Liðið leiddi svo 52-43 í hálfleik. Stjarnan jafnaði metin í fyrsta sinn í 70-70 þegar lítið var eftir af þriðja leikhluta. Þeir jöfnuðu svo metin aftur í 80-80 skömmu síðar. Undir lokin leiddi KR með fimm stigum 87-82. Að lokum sigldi liðið sigrinum heim. Linards var með 31 stig fyrir KR og Stjörnumegin var Pablo Bartone stigahæstur með 19 stig. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson bætti við 22 stigum, 7 fráköstum, 13 stoðsendingum og 6 stolnum fyrir KR. 6. apríl 2026 kl. 21:11ÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindvíkingar svöruðu fyrir sig Jóhann Páll Ástvaldsson DeAndre Kane. Mummi Lú Grindavík jafnaði metin í einvígi sínu gegn Njarðvík í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. Staðan er nú 1-1 eftir 84