Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var

  • What: Labor market shows higher than expected cooling
  • Impact: Employers and job seekers should be aware of changing conditions
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.5.2026 | 6:00 Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Byggingargeirinn glímir við vaxtahækkanir. Þá er fjöldi óseldra íbúða íþyngjandi fyrir sum fyrirtækin. mbl.is/Eggert Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Ásta Ásgeirsdóttir, deildarstjóri greiningardeildar hjá Vinnumálastofnun, segir grunnspá stofnunarinnar um atvinnuleysi í ár að mestu hafa haldið. Hins vegar séu merki um ívið meiri kólnun en spáð var. Skráð atvinnuleysi í apríl var 4,6% en var 4,8% í mars. Í apríl 2025 var atvinnuleysið hins vegar 3,9%. Alls voru 9.695 einstaklingar án vinnu í lok apríl, 5.697 karlar og 3.998 konur. Tveimur árum áður, í apríl 2024, voru 7.515 einstaklingar án vinnu, 4.191 karl og 3.324 konur. Hafði atvinnulausum í apríl því fjölgað um 2.180 á tveimur árum. Þá má nefna að í apríl 2023 voru um 6.590 manns án vinnu, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar, eða rúmlega 3.100 færri en í apríl á þessu ári. „Atvinnuleysi er örlítið hærra en við gerðum ráð fyrir í grunnspá okkar. Það munar þó ekki miklu, eða kannski 0,1 prósentustigi. Það eru því merki um örlítið þyngri róður,“ segir Ásta um stöðuna á þessu ári. Ekki tekið við sér Spurð hvernig staðan sé í byggingargeiranum segir Ásta að hún hafi verið þung í vetur og geirinn ekki tekið við sér í apríl eins og vonast var til. „Þannig að ef byggingariðnaðurinn er að koma til er það að gerast seinna en síðustu ár. Störfin eru í öllu falli að detta inn seinna en sumarið í fyrra,“ segir Ásta. Má í þessu efni benda á aðsenda grein eftir Jóhann Halldórsson, framkvæmdastjóra S8 ehf., í Morgunblaðinu í gær, en þar kom fram að 1.700 nýjar íbúðir væru nú óseldar á höfuðborgarsvæðinu og að varlega áætlaður vaxtakostnaður vegna þeirra væri 57,5 milljónir á dag. Þessi sölutregða mun að óbreyttu hamla nýframkvæmdum í greininni. Spurð um ferðaþjónustuna segir Ásta að komin séu fram hefðbundin merki um lækkandi atvinnuleysi í greininni fyrir sumarið, sem sé eðlilegt miðað við árstíðasveifluna. „Þó eru ráðningar í gistiþjónustu að taka hægar við sér en síðustu ár,“ segir Ásta og bendir á það misræmi að enn séu fleiri erlendir ríkisborgarar að flytja til landsins en frá því, þótt störfum sé að fækka og atvinnulausum að fjölga. Minni eftirspurn eftir vinnuafli sé því ekki farin að birtast í minni aðflutningi til landsins. Eins og sveiflujafnari „Það má segja að erlenda vinnuaflið hafi verið eins konar sveiflujafnari síðastliðinn aldarfjórðung í okkar sveiflukennda hagkerfi. Fjölgað hefur hratt í þeim hópi þegar það hefur þurft að manna laus störf en svo hefur jafnvel fækkað í hópnum þegar störfum fækkar,“ segir Ásta. Fyrir vikið sé nú meiri samkeppni um lausar stöður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lætur grínista heyra það eftir umdeilt uppistand Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Væta í kortunum Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Námsgögn fjársvelt í áratugi Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gagnrýna hvata örorkukerfisins Víkingur fékk einn hektara af landinu Námsgögn fjársvelt í áratugi Telja líkur á aðildarviðræðum fara dvínandi Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga „Auðvitað myndi það hjálpa“ Mestu sérhagsmunir í sögunni „Ég rauk á fætur“ Tókst að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins Gagnrýna hvata örorkukerfisins Hildur fundar í kvöld og á morgun Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Raskanir á flugferðum Icelandair Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Lætur grínista heyra það eftir umdeilt uppistand Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Væta í kortunum Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Námsgögn fjársvelt í áratugi Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þúsundir mótmæltu í Nuuk Námsgögn fjársvelt í áratugi Mestu sérhagsmunir í sögunni Gagnrýna hvata örorkukerfisins Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga „Auðvitað myndi það hjálpa“ Mestu sérhagsmunir í sögunni „Ég rauk á fætur“ Tókst að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins Gagnrýna hvata örorkukerfisins Hildur fundar í kvöld og á morgun Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Raskanir á flugferðum Icelandair Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article