Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skráð atvinnuleysi 4,6% í apríl

Read Full Article →

Skráð atvinnuleysi í apríl var 4,6% í apríl, samanborið við 4,8% í mars og 3,9% í apríl 2025. Í mánaðarlegri skýrslu Vinnumálastofnunar er spáð því að atvinnuleysi fari lækkandi í maí og verði á bilinu 4,3-4,4%. Að meðaltali voru 9.385 atvinnulausir í apríl. Meðalfjöldi atvinnulausra fækkaði um 242 manns milli mánaða. Alls höfðu 1.823 atvinnuleitendur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok apríl. Í apríl 2025 var fjöldi þeirra hins vegar 1.539 og nemur fjölgunin 284 á milli ára. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í apríl eða 7,5%. Atvinnuleysi var 4,8% á höfuðborgarsvæðinu í apríl og 4,2% á landsbyggðinni. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara hér á landi hafi verið 9,5% í apríl samanborið við 2,8% hjá Íslendingum. Alls komu inn 356 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun Vinnumálastofnunar í apríl.

Share this article