Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Atvinnuleysi fjórfalt hærra hjá innflytjendum

Read Full Article →

Atvinnuleysi hefur aukist undanfarið og var 7,3% í janúar 2026 en störfum er hætt að fjölga og minni eftirspurn er eftir vinnuafli en áður. Í greiningu Landsbankans segir að aukið atvinnuleysi megi þó nánast eingöngu rekja til erlends vinnuafls. Meðal Íslendinga hefur atvinnuleysi lítið breyst og er lítið í alþjóðlegum samanburði. Þrátt fyrir kólnun á vinnumarkaði hefur kaupmáttur launa aukist og einkaneysla haldist sterk. „Um mitt ár 2023 náði atvinnuleysi lágpunkti eftir að hafa aukist töluvert vegna faraldursins. Síðan hefur eftirspurn eftir vinnuafli smám saman minnkað. Á allra síðustu mánuðum hefur atvinnuleysi þokast upp á sama tíma og störfum er hætt að fjölga.“ Sjá einnig Atvinnuleysi 7,3% í janúar Skráð atvinnuleysi var 3,9% í fyrra og nú í janúar mældist atvinnuleysi 4,9% samkvæmt Vinnumálastofnun, sem er 0,7 prósentustigum hærra en í sama mánuði árið áður. Atvinnuleysi hefur ekki mælst svo hátt síðan í mars 2022. Í greiningu Landsbankans segir að þegar litið er á þróun atvinnuleysis eftir þjóðerni blasir tvískiptur vinnumarkaður við. Atvinnuleysi meðal Íslendinga mældist 2,7% árin 2023 og 2024, en hækkaði örlítið í fyrra og mældist þá 2,2%. Atvinnuleysi meðal innflytjenda hefur aftur á móti aukist ár frá ári og mældist að meðaltali 6,8% árið 2023, 7,8% árið 2024 og 8,6% í fyrra. Aðrir þættir spila jafnframt inn í myndina en innflytjendur starfa hlutfallslega oftar í tímabundnum störfum og hafa styttri starfsaldur sem getur leitt til þess að þeim sé fyrr sagt upp þegar hægir á í hagkerfinu. Auk þess getur skortur á íslenskukunnáttu gert innflytjendum erfiðara um vik að fóta sig á íslenskum vinnumarkaði.

Share this article