Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Atvinnuleysi yfir 7% í janúar

Read Full Article →

Atvinnuleysi mældist 7,3% í janúar samkvæmt niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar . Atvinnuleysi jókst því um 2,8 prósentustig milli mánaða og voru hátt í 17.400 einstaklingar atvinnulausir. Hlutfall starfandi lækkaði um 1,1 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 1,1 prósentustig. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnuþátttöku var 81,6%. „Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 8,3% í janúar 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 19.700, hlutfall starfandi var 74,5%, sem samsvarar tæplega 217.900 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 81,2% eða um 237.600 manns á vinnumarkaði,“ segir í greiningu Hagstofunnar. Sjá einnig „Það er ekki hátt at­vinnu­leysi á Ís­landi“ Samanborið við sama mánuð 2025 jókst mælt atvinnuleysi um 3,1 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 3,3 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,8 stig. Leitni árstíðaleiðréttingar á atvinnuleysi sýnir sambærilega þróun, síðustu tólf mánuði hefur það aukist úr 3,8% í janúar 2025 í 5,3% í janúar 202

Share this article