Atvinnuleysi á landinu mældist 7,1% í febrúar samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar . Atvinnuleysi jókst um 0,4 prósentustig á milli mánaða. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 1,9 prósentustig. Atvinnuleysistölur Hagstofunnar eru frábrugðnar tölum Vinnumálastofnunar þar sem önnur aðferðarfræði ræður för. Vinnumálastofnun telur skráða atvinnuleysisdaga, en Hagstofa fær sínar tölur með því að gera könnun. Atvinnuleysi samkvæmt Vinnumálastofnun var 4,9%.