Í febrúar 2026 voru 17.000 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar . Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 7,1% og jókst um 0,4 prósentustig milli mánaða. Leitni atvinnuleysis samkvæmt niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar mælist nú 6,0% og hefur ekki verið hærri síðan í apríl 2021. Hlutfall starfandi í febrúar var 75%, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum, og lækkaði um 0,8 prósenstustig milli mánaða. Atvinnuþátttaka 80,8% og minnkaði um 0,6 prósentustig. Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var tvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 7,9% í febrúar 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 18.400. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 1,9 prósentustig. Hlutfall starfandi var 72,8%, sem samsvarar tæplega 213.300 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,1% eða um 231.700 manns á vinnumarkaði. Svarhlutfall meðal innflytjenda aukist umtalsvert Í frétt á vef Hagstofunnar kemur fram að frá því í nóvember 2025 hafi svörun þátttakenda vinnumarkaðsrannsóknar aukist umtalsvert, og þá sérstaklega á meðal innflytjenda (16 til 74 ára) þar sem svarhlutfall hefur farið úr um og yfir 17% að jafnaði síðast liðin tvö ár í tæplega 41% nú í febrúar 2026. „Þetta hefur leitt til þess að forsendur á úrvinnslu rannsóknarinnar hafa breyst og til að mæta þessum breyttu aðstæðum hafa vogir rannsóknarinnar verið endurmetnar. Mánaðarlegar niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir janúar hafa því verið endurreiknaðar með þessari nýju aðferð.“