Atvinnuleysi mældist 6,3% og lækkaði um 0,7 prósentustig milli mánaða, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar . Í mars 2026 voru 14.700 atvinnulausir. Hlutfall starfandi var 75,4% og atvinnuþátttaka 80,5%. Hlutfall starfandi lækkaði um 0,3 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um eitt prósentustig. Atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára var 6,4% í mars 2026, samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Fjöldi atvinnulausra var um 15.100. Hlutfall starfandi var 75,5%, sem samsvarar tæplega 221.000 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 80,6% eða um 236.100 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 2,7 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 2,4 prósentustig og atvinnuþátttaka stóð nánast í stað.