Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skráð at­vinnu­leysi áfram 4,9%

Read Full Article →

Skráð atvinnuleysi í febrúar var 4,9%, óbreytt frá fyrri mánuði en 0,6 prósentum hærra en í febrúar 2025 þegar það mældist 4,3%. Í mánaðarlegri skýrslu Vinnumálastofnunar er spáð því að atvinnuleysi fari lækkandi í mars og verði á bilinu 4,7-4,8%. Að meðaltali voru 9.772 atvinnulausir í febrúar. Meðalfjöldi atvinnulausra fjölgaði um 24 manns milli mánaða. Alls höfðu 1.784 atvinnuleitendur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok febrúar. Í febrúar 2025 var fjöldi þeirra hins vegar 1.483 og nemur fjölgunin 301 á milli ára. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í febrúar eða 8,8%. Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu hækkaði lítillega eða um 0,1% og var 4,8%. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara hér á landi hafi verið 10,4% í febrúar samanborið við 2,8% hjá Íslendingum. Alls komu inn 285 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun Vinnumálastofnunar í febrúar. Sjá einnig „Það er ekki hátt at­vinnu­leysi á Ís­landi“

Share this article