Innlent | Morgunblaðið | 15.4.2026 | 19:10 Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Vaxandi atvinnuleysi á fyrstu mánuðum ársins kom greinilega fram í mælingum Hagstofunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ómar Friðriksson [email protected] Setja bókamerki Skráð atvinnuleysi á landinu hefur slagað upp undir 5% allt frá áramótum. Þó að örlítið hafi dregið úr því í mars frá mánuðunum á undan mældist það eftir sem áður 4,8% og hefur ekki verið meira í marsmánuði í fjögur ár eða frá því í mars 2022 þegar það var 4,9%. Skráð atvinnuleysi var 4,2% í mars á seinasta ári. Um seinustu mánaðamót var 10.051 einstaklingur á atvinnuleysisskrá, 5.980 karlar og 4.071 kona samkvæmt nýjasta yfirliti Vinnumálastofnunar (VMST). Meirihluti þeirra, eða 57%, var atvinnulausir erlendir ríkisborgarar sem voru samtals 5.683 í lok síðasta mánaðar. VMST áætlar að atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara hér á landi hafi verið 9,9% í mars en 2,8% hjá Íslendingum. Útlendingar á vinnumarkaði hér á landi hafa verið áberandi fleiri en Íslendingar í sveiflukenndum atvinnugreinum á borð við byggingariðnaðinn. Ef litið er á tölur um atvinnuleysi eftir atvinnugreinum má t.a.m. sjá að ríflega þrefalt fleiri einstaklingar með erlent ríkisfang en Íslendingar voru atvinnulausir í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um síðustu mánaðamót eða 953 innflytjendur en 298 Íslendingar. Kort/mbl.is Í umfjöllun ASÍ um tölur VMST er bent á að frá febrúar til mars fækkaði atvinnulausum mest í ferðaþjónustu og gistiþjónustu, í takt við árstíðabundna aukningu umsvifa í þeim greinum á vormánuðum. „Á sama tíma fjölgaði atvinnulausum í fjármála- og vátryggingastarfsemi og einnig í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Þetta bendir til þess að árstíðasveiflur skýri hluta minnkunar atvinnuleysis, einkum í ferðaþjónustu, en þróunin er ekki einsleit milli greina. Atvinnuleysi hefur til að mynda aukist í byggingarstarfsemi, þar sem gera má ráð fyrir að háir stýrivextir hafi meðal annars dregið úr umsvifum,“ segir í umfjöllun ASÍ. Vaxandi atvinnuleysi á fyrstu mánuðum ársins kom greinilega fram í mælingum Hagstofunnar, sem byggðar eru á svörum í úrtakskönnunum og ná til fleiri en þeirra sem skráðir eru atvinnulausir hjá VMST. Samkvæmt niðurstöðum Hagstofunnar sem birtar voru í lok síðasta mánaðar mældist 7,9% atvinnuleysi í febrúar. Þegar tölurnar höfðu verið leiðréttar eftir árstíðasveiflum var hlutfall atvinnulausra 7,1% samkvæmt Hagstofunni. Atvinnuleysi hefur jafnan verið mun minna á Íslandi en í mörgum Evrópulöndum, ekki síst ef litið er á langtímaatvinnuleysi þar sem meðaltal langtímaatvinnulausra hefur verið mun lægra hér en innan ESB og svipaða sögu er að segja af atvinnuleysi ungs fólks á umliðnum árum. Tölur sem Eurostat, hagstofa ESB, birti nýlega benda þó til að Ísland hafi færst nær meðaltalinu í Evrópu. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum sem Eurostat reiknar var 6% atvinnuleysi á Íslandi í febrúar og landið komið upp í 12. sæti ásamt Rúmeníu á lista yfir umfang atvinnuleysis í 30 Evrópulöndum. Á evrusvæðinu mældist 6,2% atvinnuleysi og 5,9% í ESB. Atvinnuleysið var mest í Finnlandi eða 10,4%, 9,8% á Spáni, 7,8% í Frakklandi og 7,5% í Danmörku svo dæmi séu nefnd. Atvinnuleysi meðal ungs fólks undir 25 ára aldri hefur í gegnum tíðina verið mun minna hér en í ríkjum innan ESB. Það var 15,3% í ESB í febrúar sl. samkvæmt samanburði Eurostat og yfir 20% á Spáni, í Finnlandi og Svíþjóð. Hlutfallið hefur þó einnig farið hækkandi hér á landi á síðustu mánuðum, var komið í 13,8% í febrúar síðastliðnum en var 8,8% í febrúar í fyrra. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » ÍBV - Haukar, staðan er 24:25 Keflavík - Valur, staðan er 0:0 Öryggismálin nú með nýrri nálgun Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Bayern München - Real Madrid, staðan er 1:1 Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Um 25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » ÍBV - Haukar, staðan er 24:25 Keflavík - Valur, staðan er 0:0 Öryggismálin nú með nýrri nálgun Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Bayern München - Real Madrid, staðan er 1:1 Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Hissa en tjáir sig ekki um lágflugið Þríhliða samtal við vinnumarkaðinn komið af stað Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn