- What: Prís introduces cash payment options
- Impact: Customers can now pay with cash at Prís stores
Lágvöruverðsverslunin Prís tekur nú við peningum í formi seðla og mynta á nýjum afgreiðslukössum þar sem starfsmaður afgreiðir hvern viðskiptavin fyrir sig. Hingað til hefur verslunin aðeins verið með sjálfsafgreiðslukassa og ekki tekið við reiðufé. Samkvæmt tilkynningu er um að ræða svar við kalli viðskiptavina sem hafa saknað þess að hafa þennan valmöguleika við greiðslu. „Frá því að Prís opnaði höfum við orðið þess áskynja að viðskiptavinir okkar sakna þess að geta ekki greitt með reiðufé. Hugmyndin með því að vera eingöngu með sjálfsafgreiðslukassa var að spara í yfirbyggingu því allt hjá okkur gengur út á það að bjóða lægsta verðið en á sama tíma er alltaf mikilvægt að eiga í góðu samtali við viðskiptavini, hlusta á óskir þeirra og þetta er í raun viðbragð við eindregnum óskum þeirra,“ segir Hildur Scheving, markaðsstjóri Prís. Sjá einnig Hildur Scheving nýr markaðsstjóri Prís Til þess að geta tekið við reiðufé hafa verið settir upp tveir beltakassar í versluninni þar sem starfsmaður mun nú þjónusta og afgreiða viðskiptavini.