Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður, og Ólafur Kristinsson lögmaður hafa stefnt Björgólfi Thor Björgólfssyni og Birgi Má Ragnarssyni fyrir njósnir, brot gegn rétti til einkalífs, umsáturseinelti og brot á persónuvernd, að því er Ríkisútvarpið greinir frá. Vilhjálmur og Ólafur krefjast 66 milljóna króna hvor um sig af báðum þeim stefndu, samtals 264 milljóna, með dráttarvöxtum frá desember 2012, sem var samkvæmt gögnum Kveiks sá tími sem eftirlitinu lauk. Þá krefjast þeir einnig að Björgólfur og Birgir Már greiði allan málskostnað. Kveikur fjallaði í apríl 2025 um njósnir fyrirtækisins PPP fyrir hönd Björgólfs Thors árið 2012 á einstaklingum sem komu að hópmálsókn gegn honum. Vilhjálmur og Ólafur eru meðal þeirra sem PPP, sem var í eigu fyrrverandi lögreglumannanna Jóns Óttars Ólafssonar og Guðmundar Hauks Gunnarssonar, fylgdust með. Birgir Már var framkvæmdastjóri Novators, fjárfestingarfélags Björgólfs. Björgólfur Thor sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins í júní síðastliðnum. Hann sagði að sá hluti málsins sem tengist sér og sneri að fullyrðingum um meintar njósnir á sínum vegum séu einfaldlega rangar. Upptökur hafi aldrei verið afhentar sér né starfsfólki hans og hafi því aldrei verið nýttar af Novator á nokkurn hátt. Sjá einnig Fordæmir PPP og neitar að hafa nýtt sér gögnin Björgólfur sagði að árið 2012 hafi fulltrúar PPP boðið sig fram að fyrra bragði til að afla upplýsinga um aðila sem þá voru að undirbúa hópmálsókn gegn sér. Starfsemi PPP hafi verið kynnt sem lögleg upplýsingaöflun. Hann sagði félög á sínum vegum hafa greitt 8 milljónir króna fyrir verkefnið, en ekki 33 milljónir eins haldið var fram í þættinum. Björgólfur sendi RÚV formlega beiðni um leiðréttingu „á rangfærslum sem voru viðhafðar í þætti Kveiks á RÚV þann 29. apríl síðastliðinn, og hafa síðan verið endurteknar í öðrum miðlum.“ Sjá einnig „Ekki hægt að fullyrða að njósnað hafi verið að mínu undirlagi“