Auðæfi Björgólfs Thors Björgólfssonar eru metin á 1,0 milljarða dala, eða um 125 milljarða króna, óbreytt frá fyrra ári, samkvæmt nýjum auðmannalista Forbes. Hann er eini Íslendingurinn sem nær á listann. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um fyrir ári síðan færði Forbes niður áætluð auðæfi Björgólfs Thors úr 2,5 milljörðum í 1,0 milljarð dala á árunum 2023-2025. Hann situr í dag í sæti nr. 3.332 á listanum. Sjá einnig Auður Björgólfs minnkar um 150 milljarða milli ára Tvö af stærstu fjarskiptafyrirtækjum Síle og Kólumbíu sem Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs, byggði upp sóttu um greiðslustöðvun í apríl 2024. Kröfuhafar eignuðust í kjölfarið WOM í Síle og hópur fjárfesta lagði kólumbíska fjarskiptafélaginu til nýtt fjármagn og eignaðist meirihluta á móti Novator. Björgólfur var í ítarlegu viðtali í riti Frjálsrar verslunar sem kom út í apríl 2025, þar sem hann gerði m.a. upp tíma sinn í Suður-Ameríku og WOM-verkefnið, og áherslur hans í fjárfestingum í dag. Í eignasafni hans í dag eru ríflega 50 fyrirtæki. Ein stærsta eign hans er eignarhlutur í breska-indverska félaginu DNEG, sem sérhæfir sig í tæknibrellum og tölvugrafík. Sjá einnig Björgólfur: Gátum ekki farið inn á verri tíma Forbes birti í morgun hinn árlega auðmannalista sem viðskiptamiðilinn er hvað þekktastur fyrir. Að þessu sinni nær listinn yfir 3.4288 einstaklinga sem eru metnir á einn milljarð dala eða meira. Auðæfi þeirra eru samtals metin á 20,1 þúsund milljarða dala, sem er aukning upp á 4 þúsund milljarða dala frá fyrra ári.