Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Viðskipti Icelandair á Möltu: Stéttarfélög starfsmanna bíða svara fyrir sitt fólk

Read Full Article →

Forsvarsmenn þriggja helstu stéttarfélaga starfsmanna Icelandair bíða öll eftir frekari upplýsingum frá flugfélaginu um fyrirhuguð viðskipti þess á Möltu. Meira en 3000 starfsmenn vinna hjá Icelandair og er fyrirtækið einn stærsti vinnustaður landsins. Við verðum áfram íslenskt flugfélag og að langmestu leyti með íslenska starfsmenn eins og við erum með í dag. Tilkynning Icelandair um möguleg kaup á 49 prósenta hlut í maltversku félagi Play fyrir páska hefur vakið upp áhyggjur og kallað fram spurningar hjá mörgum í starfsliði Icelandair. Helsta eign þessa félags, sem heitir Fly Play Europe, er maltverskt flugrekstrarleyfi. Til stendur að flytja hluta af starfsemi Icelandair til Möltu ef af viðskiptunum verður þó að Bogi Nils Bogason forstjóri segi að meginhluti starfseminnar verði áfram á Íslandi. Jón Þór Þorvaldsson, formaður félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir í símtali of snemmt að tjá sig um tilkynninguna. Jón Þór segir að félagið þurfi að fá svör frá Icelandair við ákveðnum spurningum áður en það tjáir sig um viðskiptin með formlegum hætti. Hann segir að félagið hafi óskað eftir svörum frá Icelandair við þessum spurningum. Um 800 flugmenn eru í félaginu og vinna langflestir þeirra hjá Icelandair, meðal annars Jón Þór sjálfur. Svar Berglindar Kristófersdóttur, formanns Flugfreyjufélags Íslands, er á þá leið að félagið vilji ekki tjá sig um tilkynninguna um viðskiptin að svo stöddu. Hún segir að Flugfreyjufélagið viti einfaldlega ekki nægilega mikið um málið á þessum tímapunkti og þurfi að fá svör frá Icelandair um viðskiptin fyrirhuguðu. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segist ekkert vita meira um fyrirætlanir Icelandair en fram hefur komið í fjölmiðlum. Hann segist hafa óskað eftir fundi með forsvarsmönnum Icelandair til að ræða um kaupin á maltverska félaginu og hvað felist í þeim. Óskar segir að félagið eigi nú í viðræðum við Icelandair um nýjan kjarasamning fyrir hönd sinna félagsmanna. Hann segir að þær viðræður séu nú hjá Ríkissáttasemjara. Fjallað er um þessi fyrirhuguðu viðskipti Icelandair með félag Play á Möltu í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Helstu stéttarfélög starfsmanna Icelandair bíða eftir svörum frá Icelandair. Tilkynning um kaup Icelandair á félagi sem er með maltverskt flugrekstrarleyfi hefur vakið ugg hjá starfsfólki. Icelandair hefur ekki áður verið með starfsemi á Möltu. Hefur ekki áður notað Möltu líkt og ýmis flugfélög Haft var eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að þessi viðskipti gætu aukið sveigjanleikann í rekstri flugfélagsins, einfaldað hann og skapað hagfræðingartækifæri. Áhyggjur starfsfólks Icelandair beinast meðal annars að því að flugfélagið ætli sér mögulega að hagræða í rekstrinum með því að færa eldri flugvélar í eigu félagsins yfir til Möltu og að ráða starfsfólk eins og flugmenn, flugfreyjur og flugvirkja þangað til að spara sér kostnað. Í flugrekstri er þetta stundum gert í gegnum starfsmannaleigur. Icelandair hefur í gegnum tíðina ekki stundað þetta. Önnur flugfélög sem hafa verið og eru starfandi á Íslandi, til dæmis Air Atlanta, Primera Air og Bláfugl, hafa hins vegar notað slík erlend félög og starfsmannaleigur til að ráða til sín fólk. Oft hefur verið fjallað um þetta í fjölmiðlum hér á landi. Fréttin um möguleg kaup Icelandair á þessu maltverska félagi heyrir því sannarlega til tíðinda. Þetta á sérstaklega við núna þar sem kjarasamningsviðræður standa yfir við stéttarfélög flugmanna, flugfreyja og flugvirkja. Í viðtali sem fréttastofa RÚV tók við Boga Nils Bogason daginn sem tilkynnt var um að viðræður stæðu yfir um viðskiptin var hann meðal annars spurður að því hvort Icelandair ætlaði sér að fara að stunda félagsleg undirboð gagnvart starfsfólki á Möltu. Um þetta sagði Bogi meðal annars að viðskiptin fyrirhuguðu á Möltu fælu ekki í sér grundvallarbreytingu á starfsemi Icelandair: „Við verðum áfram íslenskt flugfélag og að langmestu leyti með íslenska starfsmenn eins og við erum með í dag.“

Share this article