Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir að það sé ekki hluti af hugsun flugfélagsins að byrja að notast við starfsmannaleigur á Möltu til að ráða til sín starfsfólk þó að félagið íhugi nú að kaupa hlut í maltnesku flugfélagi. Starfsmannaleigur eru algengar í flugbransanum og hefur Air Atlanta til dæmis gert notað slík fyrirtæki á Möltu og þar á undan Primera Air í Lettlandi og á Ermarsundseyjunni Guernsey. Þegar Bogi er spurður um hvort starfsmannaleigur á Möltu verði notaðar til að ráða starfsfólk hjá Icelandair segir Bogi: „Meginhugsunin okkar er að vera áfram íslenskt flugfélag með langstærstan hluta af starfseminni hér á Íslandi. Við erum að hugsa þetta fyrir ákveðinn sveigjanleika, ekki síst fyrir leiguflugið og aðgreiningu á flotanum. 90 prósent af flugunum okkar núna á þessu ári eru flogin af þessum nýju vélum Airbus og Max. Það getur alveg einfaldað starfsemina að aðgreina flugflotann.“ Með þessum orðum vísar Bogi til þess möguleika að eldri flugvélar Icelandair verði sendar til Möltu; þá er átt við Boeing 757 og 767 vélar. Bogi segir að á þessari stundu ekki liggi fyrir hversu margar vélar verði fluttar til Möltu. Bogi segir enn frekar að Icelandair sé ekki að fara að ráða til sín erlenda flugmenn sem verktaka í gegnum starfsmannaleigur. „Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef þá er mikill meirihluti flugmanna Atlanta ekki á Íslandi eða á íslenska samningnum. Það verður ekki þannig hjá Icelandair. Kjarnastarfsemin verður áfram hérna á Íslandi og langstærsti hluti starfseminnar verður áfram á Íslandi. Það liggur fyrir,“ segir Bogi. Af hverju 49 prósent? Viðræður standa nú yfir við eigendur maltverska félagsins Fly Play Europe um að Icelandair kaupi 49 prósenta hlut í því og að hluti af starfsemi Icelandair muni fara fram í gegnum þetta félag. Maltneska félagið er með flugrekstrarleyfi á Möltu og stóð til að flytja rekstur flugfélagsins Play þangað áður en félagið fór í þrot í fyrrahaust. Eitt af því sem ekki liggur fyrir er af hverju Icelandair ætlar bara að kaupa 49 prósenta hlut í maltneska félaginu. Bogi segir að svarið við því sé einfalt: Að eigendur félagsins hafi einfaldlega boðið þeim þennan hlut til kaups, það er að segja minnihluta í félaginu en ekki meirihluta. Meðal eigenda félagsins á Möltu eru þrír lífeyrissjóðir, meðal annars Birta, og fjárfestingarfélagið Stoðir, fyrrverandi forstjóri Play, Einar Örn Ólafsson, og fyrrverandi stjórnarformaður Play, Elías Skúli Skúlason. Þessir hluthafar munu því eiga meirihluta í félaginu á Möltu á móti Icelandair. Ef af þessum viðskiptum Icelandair verður er um að ræða sögulegt skref fyrir flugfélagið. Icelandair hefur ekki áður verið í rekstri í gegnum Möltu þótt þetta sé vissulega algengt í flugbransanum. Icelandair er einn stærsti vinnustaður Íslands en rúmlega 3000 starfsmenn eru hjá félaginu eða um 1 prósent þjóðarinnar eins og Bogi nefnir. Rætt er við Boga Nils Bogason um viðræðurnar og framtíð Icelandair í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að eigendur Fly Play Europe hafi aðeins boðið Icelandair að kaupa minnihluta í maltnesku flugfélagi. Forstjórinn svarar spurningum um viðskiptin á Möltu sem vakið hafa upp áhyggjur starfsfólks. Hversu mikið verður á Möltu? Bogi er spurður út í þá staðhæfingu sína að að langstærstu leyti sé á Íslandi ef af viðskiptunum verður. En hversu stór hluti af starfseminni verður á Íslandi og hversu mikið verður fært til Möltu? Bogi Nils segir um þetta: „Eins og ég er búinn að segja margsinnis þá eru viðræður bara að hefjast. Langstærsti hluti starfseminnar – ef þetta verður að veruleika, sem liggur ekkert fyrir í dag, þó að við förum í viðræðurnar með það að markmiði að klára samning, en ef þetta verður að veruleika verður langstærsti hluti starfseminnar áfram á Íslandi.“ Út frá svörum Boga er ljóst að það liggur ekki fyrir að svo stöddu hversu mikið af starfsemi Icelandair verður á Íslandi og hversu mikið verður á Möltu.