Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sak­felldur fyrir sölu á einni vín­belju í Smáríkinu

Read Full Article →

Vil­hjálmur For­berg Ólafs­son, for­svars­maður áfengis­net­verslunarinnar Smáríkisins, hefur verið sak­felldur fyrir ólög­mæta smásölu áfengis eftir að hafa selt eina þriggja lítra belju af hvít­víni í lok maí í fyrra. Dómurinn var kveðinn upp síð­degis í dag en Vísir.is greinir frá niðurstöðunni. Málið laut að sölu á einum þriggja lítra hvít­víns­belg af tegundinni BiB Fron­tera Chardonnay, sem seldur var á 6.898 krónur í gegnum vefsíðuna smarikid.is þann 30. maí 2024. Sam­kvæmt ákæru var vínið af­hent sendli frá Wolt, sem kom því síðan til kaupandans eftir að greiðsla fyrir vöruna og sendingar­kostnað hafði farið fram í gegnum greiðslu­gátt vefsíðunnar. Ákæru­valdið taldi söluna hafa verið lið í at­vinnu­starf­semi félaganna Kjútís ehf. og Icelandic Tra­ding Company b.v., sem Vil­hjálmur var sagður hafa komið fram fyrir sem stjórnar­maður, fram­kvæmda­stjóri og dag­legur stjórnandi. Sam­kvæmt ákærunni hafði ís­lenska félagið Kjútís ehf. keypt vínið af áfengis­heild­sala hér á landi á grund­velli tíma­bundins heildsölu­leyfis og geymt það á starfs­stöð sinni við Fellsmúla 24 í Reykja­vík þar til það var selt. Við­skiptin fóru þannig fram án þess að Vil­hjálmur eða þau félög sem hann veitti fyrir­svar hefðu leyfi til smásölu áfengis á Ís­landi á þeim tíma sem um ræðir. Þá var byggt á því í ákærunni að hollenska félagið Icelandic Tra­ding Company b.v. hefði ekki flutt áfengið til landsins eftir að pöntun barst, heldur haft milli­göngu um smásölu áfengis sem þegar hafði verið keypt hér á landi og geymt í Reykja­vík. Með því hefði verið brotið gegn einka­leyfi Áfengis- og tóbaks­verslunar ríkisins til smásölu áfengis á Ís­landi. Í ákærunni var farið fram á að Vil­hjálmur yrði dæmdur til refsingar fyrir brot gegn áfengislögum, en slík brot geta varðað allt að sex ára fangelsi. Auk sektarinnar var Vil­hjálmi gert að greiða máls­varnar­laun skipaðs verjanda síns, sam­tals 4,9 milljónir króna. Vil­hjálmur var ekki viðstaddur dóms­upp­söguna, en þar voru meðal annars mættir full­trúar for­varnar­sam­taka og annarra net­verslana sem selja áfengi. Kjútís ehf., sem tengdist málinu, er að öllu leyti í eigu Ólafs Friðriks Ólafs­sonar, eig­anda Pizzunnar. Hann er bróðir Vil­hjálms For­bergs.

Share this article