Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Slysum fækkaði verulega í umferðinni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 8.4.2026 | 16:30 Slysum fækkaði verulega í umferðinni Bílar í umferðinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ómar Friðriksson [email protected] Setja bókamerki Seinasta ár var að mörgu leyti mun betra ár í umferðinni á landinu ef litið er á fjölda slysa en hægt er að segja um næstu árin þar á undan. Einstaklingum sem létust í umferðarslysum fækkaði úr 13 í tíu á milli ára. Alvarlega slösuðum einstaklingum fækkaði talsvert frá árinu á undan eða úr 228 í 182. Alls fækkaði þeim sem létust eða slösuðust alvarlega í umferðinni um 49 í fyrra eða um 20% á milli ára og er þetta fyrsta árið frá 2020 þar sem samanlagður fjöldi látinna og alvarlega slasaðra er undir 200 á heilu ári. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Samgöngustofu um umferðarslys á Íslandi á árinu 2025, þar sem birt er ítarleg greining á slysum í umferðinni. Bent er á að samkvæmt markmiðum umferðaröryggisáætlunar ætti fjöldi þeirra sem láta lífið í umferðarslysum eða slasast alvarlega ekki að vera hærri en 150 „og er því ljóst að við erum talsvert frá því að ná markmiðum okkar hvað þetta varðar en erum þó mun nær því heldur en árið áður. Lítið slösuðum fækkar úr 1.140 í 1.049 og lækkar því heildarfjöldi slasaðra og látinna úr 1.381 í 1.241,“ segir í samantekt. Tíu létust Af þeim tíu einstaklingum sem létust í banaslysum á seinasta ári var einn erlendur ferðamaður og einn erlendur ríkisborgari sem bjó hér á landi. Sjö karlmenn og þrjár konur létust í umferðinni á árinu 2025. Yngsti einstaklingurinn var eins árs stúlka og sá næstyngsti var 43 ára. Helmingur þeirra sem létu lífið var eldri en 70 ára. „Tveir fótgangandi einstaklingar létust, einn á bifhjóli, einn á steypubíl en aðrir sem ökumenn eða farþegar í fólksbifreið. Fjórir af þessum tíu einstaklingum létust á höfuðborgarsvæðinu,“ segir þar enn fremur. Þeim sem slösuðust á rafhlaupahjólum og reiðhjólum fjölgaði nokkuð á seinasta ári frá árinu á undan. Einstaklingar sem slösuðust á reiðhjóli voru 69 á árinu 2024 en 95 á seinasta ári og þeim sem slösuðust á rafmagnshlaupahjóli fjölgaði úr 103 árið 2024 í 127 í fyrra. Þeim sem slösuðust af völdum ölvunaraksturs fækkar nokkuð á milli ára eða úr 57 í 44 á seinasta ári. Sömuleiðis lækkaði fjöldi alvarlega slasaðra vegna ölvunaraksturs úr tíu í átta en fram kemur að á seinasta ári lést enginn af völdum ölvunaraksturs þriðja árið í röð. „Slösuðum vegna fíkniefnaaksturs fækkar talsvert á milli ára, úr 41 í 33, og alvarlega slösuðum vegna fíkniefnaaksturs fækkar úr fjórum í þrjá. Enginn lést vegna fíkniefnaneyslu við akstur en það gerðist síðast árið 2019,“ segir í skýrslu Samgöngustofu. Alls urðu 8.360 slys eða skráð óhöpp í umferðinni í fyrra, þar af voru 7.458 óhöpp án meiðsla, nokkru fleiri en á árinu á undan. Tveir létust og 25 slösuðust alvarlega við útafakstur og bílveltur, mun færri en á árinu 2024 þegar fjórir létu lífið og 64 slösuðust alvarlega við útafakstur og bílveltur. 198 erlendir ferðamenn slösuðust í umferðinni á seinasta ári en þeir voru 232 á árinu á undan. Mun færri erlendir ferðamenn slösuðust alvarlega í umferðinni í fyrra en árið á undan, eða 34 samanborið við 61 á árinu 2024. Alls voru skráð 869 slys eða óhöpp í fyrra þar sem erlendur ferðamaður var undir stýri. 14 börn á aldrinum 0-14 ára slösuðust alvarlega í umferðarslysum í fyrra en þau voru til muna fleiri eða 23 á árinu 2024. Samgöngustofa leggur mat á fjárhagslegan kostnað við skráð umferðarslys. Heildarkostnaðurinn vegna umferðarslysa á árinu 2025 er áætlaður 82,6 milljarðar króna. Seinustu fimm ár er samanlagður kostnaður við umferðarslys kominn í um 417 milljarða. Slys og óhöpp Alls urðu 8.360 slys og óhöpp í umferðinni í fyrra, þar af 7.458 óhöpp án meiðsla Flest alvarleg slys í október Fjöldi slasaðra eftir landshlutum var 1,5 á hverja þúsund íbúa á Vesturlandi en 3,2 á Austurlandi 74 óvarðir vegfarendur slösuðust alvarlega og tveir létust á seinasta ári Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tæp 80 prósent kjósa Sjálfstæðisflokk eða Miðflokk Tilkynna 28 listamenn frá 12 löndum 16% atkvæða myndu falla dauð Bjartsýni í byrjun kolmunnavertíðar Slysum fækkaði verulega í umferðinni Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Verðmætasköpun í ríkisrekstri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íranar stöðva umferð um Hormússund á ný Íranar lýsa yfir sigri Hverju er Trump að hóta? Trump: Íran mun ekki auðga úran Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Trump áður bakkað um leið og mótmæli eru skipulögð Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » Tæp 80 prósent kjósa Sjálfstæðisflokk eða Miðflokk Tilkynna 28 listamenn frá 12 löndum 16% atkvæða myndu falla dauð Bjartsýni í byrjun kolmunnavertíðar Slysum fækkaði verulega í umferðinni Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Verðmætasköpun í ríkisrekstri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Um 15 lönd taka þátt í opnun Hormússunds Frestar árásum á Íran Þekkt leikkona styður Grindavík Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Trump áður bakkað um leið og mótmæli eru skipulögð Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón

Share this article