Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Talsvert um ferðamenn sem var beint um Hvalfjörð

Read Full Article →

Viðgerðir í Hvalfjarðargöngum fara vel af stað, segir Valgarður Guðmundsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni. Framkvæmdir í göngunum hófust í gær en vegna viðgerðanna verða göngin lokuð frá hálf tíu á kvöldin til sex á morgnana næstu sjö vikurnar. „Þetta gekk samkvæmt áætlun, bara mjög vel,“ segir Valgarður. Hann segir lokanirnar í gærkvöld og í nótt ekki virðast hafa verið til mikilla vandkvæða. „Sem betur fer var ekki mikið vesen, en fólk er aðeins að átta sig á þessu,“ segir Valgarður. Hann bætir við að talsvert hafi borið á ferðamönnum sem ekki hafi vitað af lokuninni en ítrekar að heilt yfir hafi lokunin gengið vel fyrir sig. Töluverð umferð myndaðist við göngin skömmu fyrir lokun í gær og segir Valgarður það viðbúið. Slíkt sé algengt þegar komi að framkvæmdum sem þessum. „Við hvetjum fólk til að leggja tímanlega af stað og aka með gát.“

Share this article