Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kvik­mynda­tekjur námu 50 milljörðum árið 2024

Read Full Article →

Rekstrartekjur í menningu og skapandi greinum námu 179 milljörðum króna árið 2024 og jukust um tæp 6% frá árinu á undan þegar þær voru 169 milljarðar. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en þar segir að hækkunin hafi numið 0,1% á verðlagi ársins 2024. Tekjurnar voru mestar í kvikmyndum og sjónvarpi, eða um 49,2 milljarðar króna, og jukust einnig hlutfallslega mest eða um 17,9% frá árinu 2023, úr 41,8 milljörðum. „Rekstrartekjur jukust einnig talsvert í myndlist, um 12,6%, og í menningararfi um 10,2%. Aftur á móti drógust rekstrartekjur saman í nokkrum flokkum, þá helst í listnámi um 12,4% eða úr 2,9 milljörðum króna í 2,6 milljarða. Einnig var nokkur samdráttur í prentun og tónlist, um 9,2% annars vegar og 5,6% hins vegar.“ Hagstofan segir jafnframt að örlítil aukning hafi orðið meðal rekstraraðila í menningu og skapandi greinum en þeir jukust um 28 talsins og voru 3.618 árið 2024. Flestir rekstraraðilar voru í tónlist, eða um 687, og hafði þeim fjölgað um 12 frá árinu á undan. Hins vegar voru fæstir rekstraraðilar í tölvuleikjum, eða 17 talsins, og hafði þeim fjölgað um aðeins einn milli ára.

Share this article