Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hagnaðist um 794 milljónir króna árið 2025, samanborið við 537 milljóna hagnað árið áður. Arðsemi eigin fjár var 10,6%, samanborið við 7,4% á fyrra ári, samvæmt nýrri ársskýrslu . Aukinn hagnað má þó alfarið rekja til 376 milljóna króna söluhagnaðar rekstrarfjármuna á árinu 2025. Ríkisfyrirtækið seldi húsnæði sitt við Hólabraut á Akureyri og á Egilsstöðum. Rekstrartekjur ÁTVR drógust saman um 0,8% milli ára og námu 41,9 milljörðum króna en þess ber að geta að söluhagnaður flokkast undir rekstrartekjur félagsins. Sala áfengis nam 33,5 milljörðum króna og dróst saman um 745 milljónir eða um 2,2% milli ára. Sala í lítrum talið dróst saman um 5,62% milli ára. Viðskiptavinafjöldi Vínbúðanna var 4,8 milljónir, sem er 4,4% fækkun frá árinu á undan. Sala tóbaks jókst lítillega milli ára og nam tæpum 8 milljörðum króna. Sala vindlinga í magni dróst saman um 3%. Selt magn neftóbaks dróst saman um 0,4% milli ára. Rekstrarkostnaður ÁTVR nam 41,1 milljarði króna og dróst saman um 1,5% milli ára. Laun og tengd gjöld námu 3,6 milljörðum króna og drógust saman um 2%. Ársverkum fækkaði úr 315 í 302 milli ára. Eignir ÁTVR námu rúmlega 9,3 milljörðum króna í árslok 2025 og eigið fé var rúmlega 7,5 milljarðar króna. Stefnumótunarvinna sett af stað undir nýjum forstjóra Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, var skipuð forstjóri ÁTVR af fjármálaráðherra í fyrra og tók hún við starfinu í september af Ívari J. Arndal sem hafði gegnt stöðunni í 20 ár. Í formála forstjóra í ársskýrslu ÁTVR segir Þorgerður Kristín að árið 2025 hafi verið krefjandi en gott rekstrarár. Hún segir á þessum tímamótum forstjóraskipta og með nýjum stjórnendum sé kjörið tækifæri til að staldra við, greina stöðuna og rýna starfshætti. „Fyrir stuttu hófst stefnumótunarvinna hjá fyrirtækinu þar sem megináhersla er lögð á að skilgreina áherslur, markmið og forgangsröðun verkefna til næstu ára. Markmiðið er að byggja á þeim trausta grunni sem fyrir er, en jafnframt að skerpa og skýra framtíðarsýn, styrkja rekstur, greina tækifæri til úrbóta og styðja við áframhaldandi þróun. Með skýrri stefnu erum við betur í stakk búin til að takast á við áskoranir og nýta þau tækifæri sem fram undan eru.“ Sjá einnig Gæti haft óafturkræf áhrif á einkasölu ÁTVR Hún segir það ekki hlutverk ÁTVR að hafa skoðun á umræðu í samfélaginu um fyrirkomulag áfengissölu í landinu og ágreining um lögmæti áfengissölu fyrir utan Vínbúðir ÁTVR. „Hjá fyrirtækinu er hins vegar mikil þekking og reynsla af málaflokknum, þeim ramma sem ríkiseinkasölum er settur og lýðheilsumálum. ÁTVR mun miðla þessari þekkingu á málefnalegan hátt, sérstaklega þegar farið er með rangt mál um umgjörð og starfsemi fyrirtækisins.“