Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Um 7 milljarða hagnaður og lægra vöru­verð boðað

Read Full Article →

Hagar högnuðust um tæpa 7,4 milljarða króna á rekstrarárinu 2025/26, saman­borið við rúm­lega 7 milljarða árið á undan. Vöru­sala sam­stæðunnar nam jafn­framt rúmum 197 milljörðum króna og jókst um 9,3 pró­sent milli ára, en EBITDA nam rúmum 18,1 milljarði króna. Stjórn­endur félagsins horfa jafn­framt bjartsýnir fram á veginn. Af­komu­spá fyrir rekstrarárið 2026/27 gerir ráð fyrir að EBITDA sam­stæðunnar verði á bilinu 18,8 til 19,3 milljarðar króna, sem er aukning frá nýliðnu rekstrarári. Í stjórn­enda­upp­gjöri Haga kemur fram að rekstrarárið hafi verið gott og að ný stoð í rekstrinum, SMS í Færeyjum, hafi nú fest sig í sessi. Finnur Odds­son for­stjóri Haga segir niður­stöðurnar endur­spegla „sterka stöðu allra rekstrar­eininga sam­stæðunnar og ágæta eftir­spurn á þeim mörkuðum sem við störfum á, bæði á Ís­landi og í Færeyjum.“ Á fjórða árs­fjórðungi nam vöru­sala Haga tæpum 48 milljörðum króna og jókst um 4,4 pró­sent milli ára. EBITDA nam rúmum 4 milljörðum króna, eða 8,4 pró­sentum af veltu, en hagnaður á fjórðungnum var tæpir 2 milljarðar króna. Af­koma fjórðungsins var því sterk þótt hagnaður hafi dregist saman frá sama tíma­bili í fyrra, meðal annars vegna jákvæðra ein­skiptisáhrifa og mats­breytinga á fjár­festingarfa­st­eignum á saman­burðartíma­bilinu. Sterkasta þróunin var áfram í verslunum og vöru­húsum Haga á Ís­landi. Tekjur þess starfsþáttar námu tæpum 35,7 milljörðum króna á fjórðungnum og jukust um 8,1 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra. Heimsóknum í dag­vöru­verslanir félagsins fjölgaði um 6,8 pró­sent og seldum stykkjum um 3,2 pró­sent. Að sögn Finns stað­festir aukning í veltu, seldu magni og fjölda heimsókna „aukinn meðbyr með verslunum Haga.“ Bónus hélt áfram að drífa vöxtinn áfram. Velta keðjunnar jókst um 9 pró­sent á fjórðungnum og selt magn um 4 pró­sent. Í upp­gjörinu kemur fram að Hagar hafi náð að lækka verð á um 850 vörum í Bónus og halda verði á um 1.600 vörum til viðbótar óbreyttu milli ára. Finnur segir að við­skipta­vinir spari sér „tugi milljóna í hverjum mánuði á góðum til­boðum“. Jóla­verslun Hag­kaups gekk einnig vel og lagði grunn að sterkum fjórðungi, að sögn félagsins. Við­skipta­vinir hafi aldrei verið fleiri og vægi net­verslunar með sér­vöru, veislurétti og dag­vöru hafi aukist. Þá er rekstur Zara sagður hafa gengið vel og af­koma verið um­fram bæði áætlanir og fyrra ár. Eldum rétt hélt sömu­leiðis áfram að njóta vinsælda hjá neyt­endum. Hjá Olís námu tekjur tæpum 9 milljörðum króna á fjórðungnum og lækkuðu um 10 pró­sent frá fyrra ári. Sú lækkun er sögð stafa al­farið af niður­fellingu olíu­gjalds um áramót. Með óbreyttu olíu­gjaldi hefði sölu­vöxtur sam­stæðunnar numið um 6,4 pró­sentum. Seldum elds­neytislítrum fjölgaði engu að síður um 1,2 pró­sent og af­koma Olís var um­fram áætlanir þótt hún hafi dregist lítil­lega saman milli ára. Í Færeyjum jukust tekjur SMS um tæp 9 pró­sent milli ára og námu tæpum 4 milljörðum króna. Heimsóknum við­skipta­vina fjölgaði um 2,2 pró­sent. Af­koma varð þó undir bæði fyrra ári og áætlunum, sem félagið rekur annars vegar til ein­skiptis­tekna á fyrra ári og hins vegar til sölutaps vegna hnökra í af­hendingu að­fanga skömmu fyrir jól. Sam­hliða upp­gjörinu boðuðu Hagar nýtt inn­kaupa­sam­starf við danska smásölu­fyrir­tækið Salling Group, sem á að gera Bónus og Hag­kaupi kleift að lækka verð á hundruðum vara á næstu misserum. Finnur segir sam­starfið marka tíma­mót í ís­lenskri dag­vöru­verslun, þar sem inn­kaupa­kraftur Salling muni nýtast til að lækka verð og auka vöruúr­val. Hagar segjast gera ráð fyrir að verðlækkanirnar muni hafa jákvæð áhrif á verðþróun á dag­vöru­markaði og draga úr verðbólguþrýstingi vegna mat­vöru. Félagið heldur einnig áfram að byggja upp nýjar tekju­stoðir. Vildar­kerfið Takk, sem fór af stað í janúar, hefur fengið góðar viðtökur og eru not­endur orðnir tæp­lega 60 þúsund. Þá hefst form­leg starf­semi Haga miðla 17. apríl, en þar sjá stjórn­endur ný tækifæri til tekjuöflunar og sam­starfs við birgja. Eigið fé Haga nam tæpum 42,8 milljörðum króna í lok rekstrarársins og eigin­fjár­hlut­fallið var 37,1 pró­sent.

Share this article