Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagar leggja til 3,3 milljarða arð­greiðslu

Read Full Article →

Stjórn Haga leggur til að greiddur verði 3,3 milljarða króna arður til hlut­hafa á árinu 2026. Arð­greiðslu­til­lagan nemur um 3,03 krónum á hvern útistandandi hlut og jafn­gildir 50% af hagnaði ársins eftir skatta, án áhrifa mats­breytinga og af­komu hlut­deildar­félaga. Til­lagan verður lögð fyrir aðal­fund Haga, sem haldinn verður 21. maí. Hagar birtu í dag endur­skoðaðan árs­reikning fyrir rekstrarárið 2025/26, sem lauk 28. febrúar síðastliðinn. Félagið hafði áður birt óendur­skoðað stjórn­enda­upp­gjör um miðjan apríl og segir í til­kynningu Haga að engin frávik séu í endur­skoðuðum árs­reikningi frá þeim upp­gjörs­gögnum. Sjá einnig Um 7 milljarða hagnaður og lægra vöru­verð boðað Hagnaður Haga nam 7,4 milljörðum króna á rekstrarárinu, saman­borið við 7,0 milljarða króna árið áður. Heildar­af­koma ársins nam 7,7 milljörðum króna. Vöru­sala nam 197 milljörðum króna og jókst um 9,3% milli ára. Fram­legð nam 49,1 milljarði króna, eða 24,9% af veltu. EBITDA nam 18,1 milljarði króna, saman­borið við 14,7 milljarða króna árið áður. Eigið fé Haga nam 42,8 milljörðum króna í lok rekstrarársins og eigin­fjár­hlut­fallið var 37,1%, saman­borið við 36,5% árið áður. Álfa­bakki 2 ber þar uppi CA­PEX Af­komu­spá stjórn­enda fyrir nýhafið rekstrarár 2026/27 gerir ráð fyrir að rekstrar­hagnaður fyrir af­skriftir og mats­breytingar, EBITDA, verði á bilinu 18,8 til 19,3 milljarðar króna. Spáin byggir meðal annars á því að verðlag hækki um 3,7% á árs­grund­velli og að áhrif kjara­samninga nemi um 5% hækkun launa milli ára. Ekki er gert ráð fyrir veru­legum áhrifum af gengis­breytingum helstu inn­kaupa­mynta. Í árs­reikningnum kemur fram að fram­kvæmdir og yfir­færsla starf­semi í Álfa­bakka 2 muni hafa í för með sér tíma­bundinn kostnaðar­auka í rekstri, meðal annars vegna tvöfaldrar leigu. Sá kostnaður er áætlaður um 470 milljónir króna á rekstrarárinu 2026/27. Út­gefin af­komu­spá tekur til­lit til þessa kostnaðar­auka og er því lægri en áætlanir félagsins fyrir grunn­rekstur ársins. Gert er ráð fyrir að fjár­festingar ársins, CA­PEX, verði á bilinu 5,6 til 6,0 milljarðar króna. Álfa­bakki 2 ber þar uppi fjár­festingar ársins, en með flutningi þan Fjár­mögnun sögð tryggð Í árs­reikningnum segir að fjár­hags­leg staða sam­stæðunnar sé sterk og fjár­mögnun tryggð. Hagar hafi að­gang að skammtíma­fjár­mögnun í formi lána­lína að fjár­hæð þrír milljarðar króna og hafi einnig nýtt sér skammtíma­fjár­mögnun með víxlaút­gáfu innan tíu milljarða króna út­gáfuramma. Stjórn­endur gera ráð fyrir að félagið nýti sér áfram markaðs­fjár­mögnun á næstu misserum. Hagar segja nýtt inn­kaupa­sam­starf við Salling Group gera Bónus og Hag­kaup kleift að lækka verð á hundruðum vara. Þá hafi nýtt vildar­kerfi, Takk, fengið góðar viðtökur og séu not­endur þess orðnir tæp­lega 60 þúsund. Hún segir áherslur félagsins í ár áfram vera öflugan rekstur félaganna og fjár­festingu í framtíð þeirra.

Share this article