Innlent | Morgunblaðið | 8.4.2026 | 22:10 Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Lengi hefur verið deilt um hvort færa eigi kvöldfréttir til að sýna beint frá íþróttaviðburðum. mbl.is/Eyþór Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Skiptar skoðanir eru á því innan Ríkisútvarpsins hvort rétt sé að færa kvöldfréttatíma sjónvarps til þegar útsendingar frá stórum íþróttaviðburðum ber upp á sama tíma. Stefán Jón Hafstein stjórnarformaður RÚV vakti máls á þessu á stjórnarfundi nýverið og vill ekki að fréttir víki fyrir íþróttaefni. Í fundargerð stjórnar kemur fram að rætt hafi verið um samspil RÚV 1 og RÚV 2 þegar kemur að íþróttum og fréttum. Óskaði Stefán eftir skýrari línum um verkaskiptingu sjónvarpsrásanna. Máli sínu til stuðnings sagði hann að í útvarpi væri Rás 2 íþróttarásin og hið sama gæti að hans mati átt við sjónvarpið. Sagði stjórnarformaðurinn að stefna ætti að því að hnika ekki föstum aðalfréttatíma sjónvarps að óþörfu meðan RÚV 2 væri ónotuð. „Að hans mati væri fréttatíminn gengisfelldur með því að færa hann á breytilega jaðartíma í dagskrá og gæta yrði að því að hlutverk og ábyrgðarskylda RÚV gagnvart fréttaflutningi væru víðtæk og mikil, ekki síst þegar framboð af kvöldsjónvarpsfréttum almennt væri minna nú en áður,“ segir í fundargerð. Ekki eru allir sammála þessu mati stjórnarformannsins og á fundinum var til andsvara Eva Georgs Ásudóttir dagskrárstjóri sjónvarps. Greindi hún frá því að það væri dagskrárákvörðun að setja ekki vinsælustu dagskrárliði í línulegu sjónvarpi hverja til höfuðs öðrum. Sagði Eva að víða í nágrannalöndum okkar og í Bretlandi væru fréttatímar færðir vegna íþróttaútsendinga og annarra stórviðburða. Tilfærsla frétta væri ekki bundin við öflun auglýsingatekna hjá þeim aðilum. „Vinsælir línulegir dagskrárliðir á borð við íþróttir geri það að verkum að kvöldfréttir ná til fleiri áhorfenda sem annars myndu ekki horfa á þær. Þá séu gæði útsendinga ekki sambærileg á milli stöðvanna og Tiro-textun eingöngu í boði RÚV 1,“ sagði dagskrárstjórinn. Stefán Jón hafði ekki sagt sitt síðasta á fundinum og boðaði frekari umræður um skýrari og fastmótaðri verkaskiptingu rásanna. Þetta segir hann að verði þegar væntanleg dagskrárstefna sjónvarps verði kynnt. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Spyr sig hvort Íranir skilji ensku Vesturbæingar í undanúrslit Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Ellefu íslensk mörk Hver er Daníel Hjörvar og hvar fæst Adidas-gallinn hans? Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leiðtogar fagna: „Skref til baka frá brúninni“ „Orð eru til alls fyrst“ Þekkt leikkona styður Grindavík Heuermann játaði að hafa myrt konurnar Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Trump áður bakkað um leið og mótmæli eru skipulögð Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » Spyr sig hvort Íranir skilji ensku Vesturbæingar í undanúrslit Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Ellefu íslensk mörk Hver er Daníel Hjörvar og hvar fæst Adidas-gallinn hans? Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Trump: Íran mun ekki auðga úran Ljósblossar á tunglinu Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Trump áður bakkað um leið og mótmæli eru skipulögð Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón