Innlent | Morgunblaðið | 1.5.2026 | 10:43 Sýn segir RÚV brjóta lög Sýn leitar til Fjölmiðlanefndar. Morgunblaðið/Eyþór Setja bókamerki Sýn hf. hefur lagt fram kvörtun til Fjölmiðlanefndar þar sem því er haldið fram að Ríkisútvarpið (RÚV) hafi brotið gegn lögum um viðskiptaboð í tengslum við sjónvarpsþáttinn Góða Íslendinga. Kvörtunin beinist annars vegar að því að útsending þáttarins hafi verið rofin með auglýsingum með ólögmætum hætti og hins vegar að því að þátturinn sé aðgengilegur á vef með auglýsingum, í andstöðu við lög. Í kvörtuninni er vísað til 7. greinar laga um Ríkisútvarpið nr. 23/2013, þar sem kveðið er á um að almennt sé óheimilt að rjúfa dagskrárliði með viðskiptaboðum. Undantekningar gilda aðeins um tiltekna flokka efnis, svo sem eigin framleiðslu sem er lengri en 60 mínútur eða svokallaða „íburðarmikla dagskrárliði“. Sýn heldur því fram að þátturinn falli ekki undir þær undanþágur. Hann sé framleiddur af sjálfstæðum framleiðanda, Atlavík, og geti því ekki talist eigin framleiðsla RÚV í skilningi laganna. Jafnframt sé um hefðbundinn afþreyingarþátt að ræða en ekki „íburðarmikinn dagskrárlið“ sem réttlæti auglýsingahlé. Í samtali við Morgunblaðið segir Páll Ásgrímsson yfirlögfræðingur Sýnar að svo virðist sem eftirlit Fjölmiðlanefndar beinist fyrst og fremst að einkareknum miðlum. „Nefndin hefur haft til meðferðar aðra kvörtun Sýnar frá því í október síðastliðnum og ekki bólar á niðurstöðu. Í millitíðinni halda meint brot Ríkisútvarpsins áfram og markaðshlutdeild stofnunarinnar eykst, þvert á vilja löggjafans og ákvæði í gildandi þjónustusamningi,“ segir Páll. Hann bendir jafnframt á að í þjónustusamningi RÚV við ríkið fyrir tímabilið 2024-2027 komi fram að stefnt sé að því að draga úr umsvifum stofnunarinnar á samkeppnismarkaði, meðal annars með takmörkunum á birtingu viðskiptaboða. „Það er ekki að ganga eftir,“ segir Páll. Sýn gagnrýnir einnig eftirlit Fjölmiðlanefndar með RÚV og bendir á að nefndin hafi ekki tekið mál af þessu tagi upp að eigin frumkvæði á undanförnum árum, á meðan mál sem varða einkarekna fjölmiðla hafi verið til skoðunar. Að mati félagsins bendir þetta til skorts á jafnræði á fjölmiðlamarkaði. Jafnframt er í kvörtuninni vísað til gagna Hagstofunnar sem sýni að hlutdeild RÚV á sjónvarpsauglýsingamarkaði hafi aukist verulega á undanförnum árum og sé nú yfir helmingur markaðarins. Að mati Sýnar gengur það gegn yfirlýstum markmiðum löggjafans um að draga úr auglýsingaumsvifum ríkisfjölmiðilsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sagðist hafa tekið kókaín og fær því ekki bætur Sýn segir RÚV brjóta lög Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Jókerinn úr leik – oddaleikur í Boston Ísraelsmenn senda meint rússneskt skip í burtu Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meira safnast en vonir stóðu til en spáin góð Vinna við umönnun barna en ná ekki að sjá um sín eigin Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Brjóta ítrekað af sér án raunverulegra afleiðinga Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Herjólfur III verður klár í næstu viku Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Sagðist hafa tekið kókaín og fær því ekki bætur Sýn segir RÚV brjóta lög Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Jókerinn úr leik – oddaleikur í Boston Ísraelsmenn senda meint rússneskt skip í burtu Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Bandalag í bígerð um skipaumferð um Hormússund Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Herjólfur III verður klár í næstu viku Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás