Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segja RÚV skerða aðgengi heyrnarlausra

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.5.2026 | 20:22 Segja RÚV skerða aðgengi heyrnarlausra Í skriflegu svari til mbl.is segir Eva Georgs Ásudóttir, dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV, að fyrsti klukkutími kosningavöku RÚV með táknmálstúlkun verði sendur út á tímabundinni sjónvarpsrás, svokallaðri viðburðarrás, sem sé aðgengileg á vef og öppum RÚV. mbl.is/Eyþór Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Táknmálstúlkuð útsending frá kosningavöku RÚV í komandi sveitarstjórnarkosningum verður að hluta sýnd á svokallaðri viðburðarrás, sem aðeins er aðgengileg á vef og smáforriti ríkismiðilsins, og víkur þar með fyrir útsendingu Eurovision á RÚV2. Félag heyrnarlausra gerir athugasemdir við fyrirkomulagið og segir RÚV ekki standa við lagalegar skyldur sínar gagnvart Íslendingum sem tala íslenskt táknmál. Í skriflegu svari til mbl.is segir Eva Georgs Ásudóttir, dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV, að fyrsti klukkutími kosningavöku RÚV með táknmálstúlkun verði sendur út á tímabundinni sjónvarpsrás, svokallaðri viðburðarrás, sem sé aðgengileg á vef og öppum RÚV. Slíkar rásir séu settar upp í tengslum við sérstaka viðburði þegar aðrir viðburðir eru á sama tíma á RÚV og RÚV2. Útsendingin færist yfir á RÚV2 eftir Eurovision „Rásirnar verða sýnilegar á vef og öppum RÚV tveimur tímum áður en viðburður hefst og eru aðgengilegar þar í tvo tíma eftir að honum lýkur. Viðburðarrásirnar eru bætt þjónusta frá því sem áður var,“ skrifar Eva í svari sínu. Þar kemur aukinheldur fram að eftir að útsendingu Eurovision lýkur, um klukkan 23, verði táknmálstúlkuð kosningavaka send út á RÚV2. Takmarkar verulega aðgengi að kosningasjónvarpi RÚV Í bréfi sem Félag heyrnarlausra og Málnefnd um íslenskt táknmál sendu RÚV nú fyrir skömmu, og mbl.is hefur undir höndum, er gerð athugasemd við fyrirkomulag RÚV. Segir í bréfinu að fyrirkomulagið takmarki verulega aðgengi að kosningasjónvarpi RÚV í rauntíma og að margir þeirra sem tali íslenskt táknmál hafi hvorki tæknilega færni né aðgang að þeim búnaði sem þurfi til að nýta sér vefspilara og smáforrit. Því skapist raunveruleg hindrun í aðgengi að efni sem hafi mikla samfélagslega þýðingu. RÚV standi ekki við lagalegar skyldur sínar Í bréfinu segir aukinheldur að það að íslenskt táknmál sé látið víkja fyrir Eurovision feli í sér að aðgengi heyrnarlausra og annarra notenda íslensks táknmáls sé hindrað og því standi RÚV ekki við lagalegar skyldur sínar gagnvart Íslendingum sem tali íslenskt táknmál. Jafnframt er í bréfinu minnt á lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls sem gefa íslensku táknmáli opinbera stöðu sem eina hefðbundna minnihlutamálinu hér á landi og er aukinheldur bent á lög um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, þar sem segir að RÚV skuli veita heyrnarskertum aðgang að fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Því óskar Félag heyrnarlausra eftir því að RÚV sendi táknmálstúlkaða kosningavöku út í rauntíma á RÚV2. Með því tryggi RÚV aðgengi Íslendinga sem tali íslenskt táknmál og taki mikilvægt skref í átt að jafnræði og aðgengi í samræmi við lög og samfélagslega ábyrgð ríkismiðilsins. „Þetta snýst um raunverulegt jafnræði“ Í skriflegu svari til mbl.is segir Heiðdís Dögg Eiríkisdóttir, formaður Félags heyrnarlausra, að þrátt fyrir að íslenskt táknmál sé lögverndað sem jafnrétthátt mál samkvæmt lögum sé því ítrekað ýtt neðar í forgangsröðun. „Þegar kemur að útsendingum virðist táknmálið lenda í afgangi á meðan íþróttir, tónlist og annað efni fá pláss á aðalrásum. Við spyrjum: af hverju er ekki hægt að sýna táknmál á RÚV1 þegar RÚV2 er upptekin, eða færa annað efni á aukarásir? Þetta snýst um raunverulegt jafnræði í aðgengi,“ skrifar Heiðdís. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Haukar - Njarðvík, staðan er 11:12 Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Segja RÚV skerða aðgengi heyrnarlausra Fer ekki að flýja eftir þrjá leiki Besta deildin: Stjarnan 2:0 KR – FH minnkar muninn Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Byggjum nýja sundlaug í Garðabæ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Stúdentum greitt högg á ögurstundu Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Forvitnaðist um greiðslu styrkja Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Haukar - Njarðvík, staðan er 11:12 Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Segja RÚV skerða aðgengi heyrnarlausra Fer ekki að flýja eftir þrjá leiki Besta deildin: Stjarnan 2:0 KR – FH minnkar muninn Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Byggjum nýja sundlaug í Garðabæ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Ólíklegt að MV Hondius komi til Íslands Rannsóknarnefnd um Bakkakot í smíðum Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka

Share this article