Innlent | Morgunblaðið | 9.4.2026 | 8:00 Misskilningur hjá gömlum vini Carl Baudenbacher Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Davíð Þór Björgvinsson hefur sem gestur í hlaðvarpi Ólafs Arnarsonar á Eyjunni (dv.is) gagnrýnt þá skoðun mína að það sé rangt af ríkisstjórn og Alþingi að leggja fyrir íslensku þjóðina spurningu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Að réttara orðalag væri að spyrja hvort hefja ætti viðræðurnar að nýju. Þar hefur Davíð Þór misskilið mig. Að sjálfsögðu geta Ísland og Evrópusambandið ákveðið að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið árið 2013 þegar sest er aftur að samningaborðinu. Ég læt ósagt að sinni hvort það væri pólitískt mögulegt, enda hefur ýmislegt gerst á undanförnum þrettán árum. En það er ekki viðfangsefnið hér og nú. Kjarni málsins er hvort íslenska þjóðin veiti stjórnvöldum umboð til að ganga til slíkra viðræðna. Í því samhengi má ekki gefa þá mynd að samstaða ríki um málið. Forðast ber allt sem gæti vakið þá hugmynd hjá almenningi að fjölmargir samningskaflar hafi þegar verið afgreiddir og að það sem eftir standi reynist leikur einn. Minn gamli vinur talar jafnframt um göfug gildi Evrópusambandsins – fjölhyggju, bann við mismunun, umburðarlyndi, réttlæti, samstöðu og réttindi og jafnrétti karla og kvenna. Ég hef búið innan Evrópusambandsins í 30 ár og heyri og les um þessi gildi nánast daglega. En mér hefur einnig lærst að þetta er oft ekkert annað en áróður. Meðferð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Íslandi (sem þá var umsóknarríki!) í Icesave-deilunni var svo sannarlega ekki í samræmi við þessi gildi. Þá verður heldur ekki séð að það samrýmist þeim að heimaland mitt, Sviss, sætir takmörkunum af hálfu Evrópusambandsins við útflutning tiltekins tæknibúnaðar og hefur orðið fyrir mismunun í aðgengi að rannsóknaráætluninni Horizon 2020 þrátt fyrir að uppfylla skilyrði hennar. Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Nýr markvörður til Eyja Ný stjórn kynnt í Færeyjum Fengu 155 tonn í róðri um páskana „Getur ekki átt kökuna og borðað hana“ Misskilningur hjá gömlum vini Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjóðarsorg í Líbanon: Leiðtogar fordæma árásir Viðræður um vopnahlé haldnar í Pakistan Ljá máls á þjóðarsátt Lokun Hormússunds „óásættanleg“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kostnaður langt umfram áætlun Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Nýjast á mbl.is » Nýr markvörður til Eyja Ný stjórn kynnt í Færeyjum Fengu 155 tonn í róðri um páskana „Getur ekki átt kökuna og borðað hana“ Misskilningur hjá gömlum vini Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heuermann játaði að hafa myrt konurnar Trump: Íran mun ekki auðga úran Lokun Hormússunds „óásættanleg“ Afstaðan í andstöðu við kjósendur Mest lesið Í gær Í vikunni Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kostnaður langt umfram áætlun Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir