Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hart tekist á um Evrópusambandið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.2.2026 | 17:45 Hart tekist á um Evrópusambandið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Kristrún Frostadóttir. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Karítas Formaður Miðflokksins segir forsætisráðherra hljóta að vita að ekkert ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu án þess að ætla sér að ganga þar inn og að viðræðurnar snúist eingöngu um með hvaða hætti umsóknarríkið ætli að uppfylla kröfur Evrópusambandsins. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag og beindi fyrirspurn sinni til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Hann sagði forsætisráðherra ekki alltaf til í að veita fjölmiðlum viðtöl og svara fyrir hin ýmsu mál. Hún hefði þó mætt í hlaðvarpið Ein pæling hjá Þórarni Hjartarsyni þar sem spunnist hefðu sérkennilegar umræður um Evrópusambandið og hugsanlega aðild Íslands að því. „Svör hæstvirts forsætisráðherra voru óvenjuleg,“ sagði hann. Hún hefði sagst vilja ganga í Evrópusambandið ef Ísland fengi góða samninga en ekki svarað hvað hún vildi gera ef Ísland fengi ekki góða samninga eða varanlegar undanþágur, til að mynda varðandi auðlindamál. „Er hæstvirtur forsætisráðherra hlynntur því að Ísland gangi í Evrópusambandið þegar Ísland fær ekki varanlegar undanþágur, m.a. í auðlindamálum?“ spurði Sigmundur því ráðherrann. „Eitthvað sem hentar hans pólitík“ „Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á því hvert háttvirtur þingmaður ætlar með þessa umræðu. Það er alltaf verið að reyna að gera það tortryggilegt að þessi ríkisstjórn ætli sér í tvöfalda atkvæðagreiðslu, eins og það sé engin merking á bak við það,“ sagði Kristrún í andsvari sínu. „Það er alltaf verið að láta eins og fyrri atkvæðagreiðslan snúist um eitthvað annað en það er og eins og maður ætti ekki að hlusta á þjóðina. Eins og maður hafi engin prinsipp, eins og maður ætli sér bara óvart að lenda í Evrópusambandinu. Ég hef alveg verið skýr hvað það varðar að það er gríðarlegur munur á fyrri og seinni atkvæðagreiðslunni.“ Fyrri atkvæðagreiðslan snúist um það hvort Íslendingar ætli í vegferð að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið, sem taki orku, tíma og umhugsun en gæti vel verið þess virði. „Háttvirtur þingmaður vill kalla það aðlögunarviðræður vegna þess að það er svona eitthvað sem hentar hans pólitík – að segja við þjóðina að það borgi sig ekki einu sinni að eiga samtalið,“ sagði hún. Hún telji að það sé hægt að semja um eitthvað en stjórnvöld verði að fá samning í hendurnar áður en hægt sé að alhæfa um það. Fái Íslendingar ekki þau viðmið og þá lendingu í samningnum varðandi auðlindamál sem hún telji farsæl fyrir Ísland muni hún segja nei við seinni atkvæðagreiðslunni. „Ég veit ekki hvort háttvirtur þingmaður haldi að hann geti platað mig eitthvað hvað það varðar. Ég hef verið alveg skýr hvað það varðar. Ég veit vel hver sérstaða Íslands er. Ég veit fullvel hver hún er í fiskveiðum, hver hún er í orkumálum og öðru. Ég held hins vegar að við höfum sjaldan verið í jafn góðri stöðu og við erum nú til að ræða við Evrópusambandið um slíkar undanþágur og ég þori að taka það samtal, ólíkt háttvirtum þingmanni.“ Frétt af mbl.is Fullyrt að þjóðaratkvæðagreiðsla gæti verið strax í vor „Það sem mig grunaði og það sem ég óttaðist“ „Frú forseti, ég þarf ekki seinni spurningu. Hæstvirtur forsætisráðherra er þegar búinn að staðfesta það sem mig grunaði og það sem ég óttaðist – að hæstvirtur ráðherra er þátttakandi í því með Viðreisn, formanni þess flokks, að tala í kringum hlutina og reyna að blekkja fólk eitt skref í einu inn í Evrópusambandið,“ sagði Sigmundur. Kristrún geti þóst ekki vita út á hvað umsókn um aðild að Evrópusambandinu gangi og ímyndað sér að hægt sé að plata einhvern hluta almennings með slíkum málflutningi. „En það er ekki hægt að plata alla. Sérstaklega þegar Evrópusambandið sjálft er ítrekað búið að reyna að benda Íslendingum á, þar með talið þegar fyrri umsóknin var lögð fram, að það sé ekki til neitt sem heitir að kíkja í pakkann og fara í samningaviðræður. Ef ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu er það vegna þess að ríkið vill ganga í Evrópusambandið og ætlar svo að útskýra hvernig það mun uppfylla kröfur Evrópusambandsins. Mér finnst fyrir neðan allar hellur að hæstvirtur forsætisráðherra skuli í svona mikilvægu máli leitast við að snúa út úr, villa um fyrir fólki og plata – sem er einmitt það sem forsætisráðherra sagði fyrir kosningar að væri ljótt að gera.“ „Ég hræðist ekki þjóð mína“ „Já, það virðist eiginlega ekki skipta máli hvað maður segir í þessu máli. Maður er aldrei að svara. Maður er aldrei að segja rétt frá, maður er einhvern veginn alltaf að plata. Það er málflutningurinn og ég er alveg löngu búinn að átta mig á því hvernig umræðan verður núna í aðdraganda þessarar atkvæðagreiðslu ef þetta á að vera tónninn,“ sagði Kristrún í öðru andsvari sínu. Þegar kemur að Evrópusambandinu muni hún hlusta á þjóðina. Atkvæðagreiðslan snúist um hvort fólk vilji kanna hvernig slíkur samningur líti út. „Hér er enginn að plata neitt. Raunar hefur það verið þannig í gegnum tíðina að þær þjóðir sem hafa hafnað samningi við Evrópusambandið hafi einmitt verið þær þjóðir sem hafa verið komið með eitthvað í hendurnar til að hafna. Við erum stöðugt að tala um eitthvað sem enginn veit um. Hér er málflutningurinn slíkur að það á að hræða fólk, hræða fólk inn í þessa atkvæðagreiðslu. Ég hræðist ekki þjóð mína, hún er vel gefin, hún er upplýst og ég veit að hún mun taka rétta ákvörðun, sama hver hún er.“ Íslendingur á þátt í ólympíugulli Hart tekist á um Evrópusambandið Magnað afrek Örnu Kristrún segir gagnrýnina byggða á misskilningi Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Telur andstöðu við friðlýsingu ekki skaða samstarf Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Obama tjáir sig um myndskeiðið í fyrsta sinn Tveir sinueldar á höfuðborgarsvæðinu Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Alma auglýsir tvær forstjórastöður Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Íslendingur á þátt í ólympíugulli Hart tekist á um Evrópusambandið Magnað afrek Örnu Kristrún segir gagnrýnina byggða á misskilningi Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Besti árangur Íslendings í 20 ár Tveir sinueldar á höfuðborgarsvæðinu Obama tjáir sig um myndskeiðið í fyrsta sinn Legurýmin gætu nýst von bráðar Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Alma auglýsir tvær forstjórastöður Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri

Share this article