Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Segir Ísland njóta kostanna en nú eigi að innleiða gallana

Read Full Article →

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir blasa við átök um framtíð Íslands og fullveldi eftir að lögð fram þingsályktunartillaga um atkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Flokksráðsfundur Miðflokksins er haldinn í Hofi á Akureyri í dag. Ræðu sína á fundinum lagði Sigmundur að mestu undir Evrópumál. Hann sagði mikilvægt að Miðflokkurinn verði leiðandi í að takast á við það sem hann kallar blekkingarleik ríkisstjórnarinnar. „Slagurinn hefst núna, því ef menn kjósa að halda áfram í ágúst, þá er verið að velja ferli sem á að leiða inn í Evrópusambandið,“ sagði Sigmundur. Sigmundur sagði ekki um neinar undanþágur eða samningaviðræður að ræða. Aðlögun hæfist væri samþykkt að fara í viðræður. „Svo mun bara kerfið og fjölmiðlar eftir atvikum, spila sinn leik. En við verðum komin á brautina inn. Eins og ég hef svo oft sagt um mörg stór mistök, þegar kerfið er komið á einhverja braut þá er eiginlega sama hvað gerist; það heldur áfram á þeirri braut.“ Kannski einhverjir kostir – en ekki margir En þá væri mikilvægt að svara spurningunni um hvers vegna Íslendingar ættu að standa utan Evrópusambandsins. „Hefur það ekki ýmsa kosti að vera þar inni? Kannski einhverja en ekki marga. Eins og Jón Baldvin Hannibalsson orðaði það á sínum tíma; Við erum með allt fyrir ekkert. Við erum með EES samninginn sem hefur sína galla, ég skal alveg fallast á það, en hann hefur líka mikla kosti. Við erum með öðrum orðum komin með alla kostina en nú er lagt til að innleiða gallana líka.“

Share this article