Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir baráttuna um Ísland hefjast á flokksráðsþingi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 14.3.2026 | 15:02 Segir baráttuna um Ísland hefjast á flokksráðsþingi Sigmundur spurði sig til að mynda hvort ríkisstjórnin treysti ókjörnum embættismönnum í Brussel betur til þess að taka ákvarðanir um málefni Íslands heldur en íslensku þjóðinni Skjáskot/Af fundi Miðflokksins Setja bókamerki Tengdar fréttir Evrópusambandið Der Leyen: Mistök að snúa baki við kjarnorku ESB: Mikilvæg ákvörðun fram undan fyrir Ísland Ólafur Ragnar hæðist að Von der Leyen Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum „Vangaveltur eitt en staðreyndir annað“ » Fleiri tengdar fréttir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, lagði í ræðu sinni á flokksráðsfundi Miðflokksins áherslu á Evrópumálin og mikilvægi á trú á sjálfstæði Íslands. Bregðast yrði við áformum ríkisstjórnarinnar um að koma Íslandi inn í Evrópusambandið í tæka tíð, enda stutt í hugsanlega þjóðaratkvæðagreiðslu sem varðaði framtíð Íslands. Frétt af mbl.is Beint: Umræður um ESB-tillöguna halda áfram Ræðuna í heild sinni má nálgast hér að neðan. Evrópusamtök upplýstari en almenningur Sigmundur viðraði einnig áhyggjur sínar yfir því sem hann teldi ljóst, að hin ýmsu Evrópusamtök væru upplýstari um áform ríkisstjórnarinnar en íslenskur almenningur. „Við sáum fyrst fréttir af áformunum í erlendum fréttum, og svo fóru að birtast þessar færslur á samfélagsmiðlum Evrópusamtaka víða um lönd. Að því búnu kynnti ríkisstórnin hvað hún ætlaði sér. Maður hlýtur þá að velta fyrir sér: eru þessi samtök ennþá betur inni í því sem ríkisstjórnin íslenska ætlar sér heldur en íslenskur almenningur? Ég tel að svo sé, enda liggur ljóst fyrir að bæði utanríkisráðherra og forsætisráðherra hafa ítrekað fundað í Brussel til að undirbúa þessa ákvörðun.“ Traust ríkisstjórnar til Brussel meira en til almennings Hann gerði jafnframt athugasemdir við meintar tilraunir ríkisstjórnarinnar til þess að bæla niður gagnrýni, og sagði þær tilraunir merki þess að ríkisstjórnin vissi að þjóðin myndi ekki samþykkja að taka upp aðildarviðræður ef umræðan færi fram á réttum forsendum. „Þau þurfa að pakka þessu inn í umbúðir sem í þessu tilfelli á að heita lýðræðisást, og öllum ábendingum og leiðréttingum er svarað með spurningu: Treystirðu ekki þjóðinni? Er ekki rétt að leyfa þjóðinni að ákveða þetta? En…ákveða hvað? Ja, rétt eins og þessar erlendu síður bentu á, þá á að ákveða hvort Ísland eigi að sækja um aðild að sambandinu, halda áfram aðlöguna að sambandinu með það að markmiði að ganga þar inn. Þetta vita eiginlega allir, nema ríkisstjórn Íslands þykist ekki skilja þetta.“ Þá spurði hann að bragði hvort ríkisstjórnin treysti ókjörnum embættismönnum í Brussel betur til þess að taka ákvarðanir um málefni Íslands heldur en íslensku þjóðinni, enda yrði það lokaniðurstaða inngöngu í Evópusambandið. Rifjar fundi upp með hrolli Hann rifjaði einnig upp fundi sína með nefndum á borð við utanríkismálanefnd og sameiginlegri þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins með hrolli. „Þar þurftu evrópskir embættismenn að útskýra það fyrir okkur eins og börnum að r íki sem sækir um aðild að ESB gerir það vegna þess að ríki vill ganga inn í Evrópusambandið. Viðræðurnar súast eingöngu um að ríki útskýri hvenær og með hvaða hætti það ætli að uppfylla kröfur ESB. Og hvað varðar allt tal um undanþágur, þá hefur það verið mjög fátítt að ríki fái undanþágur, en ekkert umsóknarríki hefur fengið undanþágur,“ sagði hann. „Eftir stækkunina stóru 2004-2005 þegar lönd Mið- og Austur-Evrópu gengu inn var það gefið út að ESB veitti ekki lengur undanþágur. Aðlögunarfrestur er bara veittur í einstaka tilfellum, og undanþágur eru engar.“ Erfitt að snúa þróuninni við Eftir að hafa farið í gegnum allt þetta frelsi á sínum tíma segist Sigmundur hlessa á því að ríkisstjórnin hyggist steypa þjóðinni í átök af þessu tagi í stað þess að uppfylla til að mynda kosningaloforð um að koma verðbólgunni niður. Hann varar jafnframt við því að fari tillagan í gegn munum við ranka við okkur eftir nokkur ár, eftir að stjórnsýslan muni hafa verið undirlögð af aðildarviðræðunum svo árum skipti og gífurlegum fjármunum hafi verið varið í viðræðurnar, og að þá verði erfitt að bakka frá aðild. „Það verður ekkert aftur snúið ef ríkisstjórninni tekst að plata okkur í þetta skref,“ sagði hann. „Við skulum ekki vanmeta frelsis- og sjálfstæðisþrá Íslendinga, og við höfum séð að þessi fullveldisstefna hefur ekki verið til þess fallin að leiða yfir okkur vosbúð og fátækt, heldur þvert á móti hefur hún aukið velmegun á Íslandi.“ Að lokum hvatti Sigmundur flokksmenn til seiglu og baráttuþreks. „Stóra baráttan er hafin. Hún hefst í raun hér og nú – baráttan fyrir fullveldi og lýðræði, baráttan um heilbrigða skynsemi, nýtingu tækifæra á okkar forsendum, því við sjáum Ísland í vonanna birtu,“ sagði Sigmundur og vitnaði þar í ljóð Margrétar Jónsdóttur, Ísland er land þitt . „Baráttan um Ísland er hafin.“ Tengdar fréttir Evrópusambandið Der Leyen: Mistök að snúa baki við kjarnorku ESB: Mikilvæg ákvörðun fram undan fyrir Ísland Ólafur Ragnar hæðist að Von der Leyen Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum „Vangaveltur eitt en staðreyndir annað“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Erró brautryðjandi í franskri list Eyjakonur misstigu sig í toppbaráttunni HK bikarmeistari í blaki Hvað getur 49 ára kona gefið sjálri sér í afmælisgjöf? Segir baráttuna um Ísland hefjast á flokksráðsþingi Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Kvartað undan rukkunum Isavia Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Sólveig Anna loksins bænheyrð Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Erró brautryðjandi í franskri list Eyjakonur misstigu sig í toppbaráttunni HK bikarmeistari í blaki Hvað getur 49 ára kona gefið sjálri sér í afmælisgjöf? Segir baráttuna um Ísland hefjast á flokksráðsþingi Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandarískur hershöfðingi stjórnar rannsókninni Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Hvessir á landinu í nótt Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Sólveig Anna loksins bænheyrð Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar

Share this article