Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir áform um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Hann segist hafa séð í hvað stefndi en þó ekki frá ríkisstjórninni heldur frá Evrópusambandinu sjálfu. „Við höfum séð í hvað stefndi með þetta og heyrt af því, ekki frá íslenskum stjórnvöldum heldur frá Evrópusambandinu og embættismönnum þess í gegnum erlenda fjölmiðla,“ segir hann. „Það er afskaplega dapurlegt að íslenskur almenningur þurfi að búa við það að leita eftir fréttum í Brussel um hvað íslensk stjórnvöld ætla sér með framtíð landsins, segir Sigmundur Davíð sem telur þetta fyrst og fremst boða uppgjöf ríkisstjórnarinnar í innanríkismálum. Henni hafi ekki tekist ætlunarverk sitt og nú sé markmiðið að dreifa athyglinni með því að kljúfa þjóðina með ágreiningi um ESB. Hann sakar ríkisstjórnina um að beita blekkingum. Hann segir ekkert til sem heiti að kíkja í pakkann hjá Evrópusambandinu heldur þýði umsókn að ríki ætli að ganga í sambandið og aðildarviðræður snúist um það hvernig umsóknarríkið ætli að aðlaga sig sambandinu. „Ef ríki sækir um inngöngu í Evrópusambandið þá ætlar það að ganga í Evrópusambandið og við tekur útskýring af hálfu umsóknarríkisins hvernig það ætlar að aðlaga sig að sambandinu.“ Sigmundur Davíð segir að umsóknarríki þurfi strax að byrja slíkt aðlögunarferli. Formaður Miðflokksins sakar ríkisstjórnina um að beita blekkingum til að koma Íslandi inn í ESB. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina fara frjálslega með umboð sitt en vill að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun. Ríkisstjórnin túlkar umboð sitt frjálslega Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur ríkisstjórnina túlka of frjálslega umboð sitt til að hefja aðildarviðræður á ný. „Þetta sýnir í raun raunverulega forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin talar eins og hún hafi skýrt umboð til að fara af stað í þessa vegferð en ég er alls ekki sammála því,“ segir hún. Guðrún telur að ekki sé meirihluti fyrir þingsályktuninni á Alþingi. „Það er auðvitað algjörlega fáheyrt og án fordæma að einhver þjóð eða eitthvað þjóðþing ætli af stað í svona vegferð þegar það er ekki meirihluti fyrir því á þinginu,“ segir hún. Guðrún telur að með þessu sé verið að dreifa athygli þjóðarinnar og ríkisstjórnin sé ekki með augun á boltanum heima við. „Ríkisstjórnin hefur ekki náð niður verðbólgunni, ekki náð niður vöxtunum og atvinnuleysi hækkar og hækkar og er nú 7,5%,“ segir hún og gerir einnig athugasemd við tímasetninguna og telur að hagsmunir þjóðarinnar hafi ekki verið í forgrunni heldur hagsmunir ríkisstjórnarinnar. Formaður Miðflokksins sakar ríkisstjórnina um að beita blekkingum til að koma Íslandi inn í ESB. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina fara frjálslega með umboð sitt en vill að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun.