Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Segir ríkisstjórnina hlaupa frá verkefnum sem hún var kosin til að sinna

Read Full Article →

Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, telur að ríkisstjórnin sé að forgangsraða rangt og hlaupa frá verkefnum sem hún var kosin að sinna: að draga úr verðbólgu og lækka vexti í landinu. Hún segir að nú muni allt snúast um atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna að Evrópusambandinu sem boðuð er 29. ágúst fremur en það sem máli skipti fyrir íslensk heimili og íslenskt atvinnulíf. Tímasetningin sé ekki rétt. Þetta sagði hún í viðtali við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann að loknum þingflokksfundi Framsóknarflokksins. Formaður Framsóknarflokksins segir ekki tímabært að ræða aðild að Evrópusambandinu fyrr en ríkisstjórnin hefur náð stjórn á efnahagsmálum. Hún segir Framsóknarflokkinn skýran og einhuga í sinni afstöðu gegn aðild að ESB. Flokkurinn leggi áherslu á á auðlindir þjóðarinnar séu í eigu þjóðarinnar. Hún segist ekki vita til þess að hægt sé að semja sig frá fiskveiðistefnu ESB. Kallar eftir öllum gögnum frá samskiptum í aðdragandanum Lilja kallar eftir því að öll gögn og samskipti ráðherra við ESB um aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu verði gerð opinber. „Þær hafa sagt að það sé eitthvað um að semja og ég kalla eftir því fyrir hönd þjóðarinnar að öll þessi gögn verði sett á borðið.“

Share this article