Innlent | mbl | 23.3.2026 | 20:02 Ríkisstjórnin verði að standa við loforð sín Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á fundinum um helgina. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar fagnar komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Með henni sýni flokkurinn í verki að hann treysti þjóðinni til að ákveða eigin örlög, enda sé Samfylkingin Evrópusinnaður flokkur sem vilji stefna að fullri aðild að Evrópusambandinu svo lengi sem full yfirráð yfir auðlindum Íslands séu tryggð. Þetta kemur fram í stjórnmálaályktun flokksstjórnarfundar Samfylkingarinnar sem fór fram um helgina. Stjórn flokksins telur að umræðan um þjóðaratkvæðagreiðsluna eigi að hefjast upp yfir flokkspólitískar átakalínur og fara fram á grundvelli öflugrar og heiðarlegrar umræðu um kosti og galla aðildar að ESB. Þá fagnar stjórnin einnig ákvörðun stjórnvalda um að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag og lýsir yfir áframhaldandi stuðningi við Úkraínu í varnarstríði sínu. Tiltekt stjórnarmeirihlutans í ríkisfjármálum Í ályktuninni segir að tiltekt stjórnarmeirihlutans í ríkisfjármálum hafi skilað hagræðingu, lækkun ríkisskulda, lögfestingu stöðugleikareglu, einföldun regluverks, sameiningu stofnana, betri fjármögnunarkjörum, hærra lánshæfismati og stefnumörkun um hallalaus fjárlög árið 2027. Gripið hafi verið til aðgerða til að laga stöðuna á húsnæðismarkaði. Þar sé unnið eftir sýn um að íbúðir eigi að vera heimili, ekki fjárfestingarvörur. Kerfisbreytingar í þágu fyrstu húsnæðiskaupenda hafi verið innleiddar og ráðist hafi verið í aðgerðir til að koma í veg fyrir lóðabrask og leggja grunn að stórtækri fjölgun íbúða. Ríkisstjórnin hafi stöðvað kjaragliðnun lífeyris og launa, hækkað frítekjumörk og fæðingarstyrki og gert umbætur á Menntasjóði námsmanna. Uppbygging hjúkrunarheimila sé yfirstandandi og biðlistar eftir hjúkrunarrýmum muni helmingast milli áranna 2024 og 2027. Frá flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. mbl.is/Anton Brink Ríkisstjórnin hafi staðið við að gera skattkerfið almennara Samhliða þessu hafi verið lagður grunnur að aukinni verðmætasköpun og kraftmikilli uppbyggingu innviða um allt land. Kyrrstaða hafi verið rofin í orkumálum og samgöngumálum og atvinnustefna mótuð til framtíðar, með áherslu á vöxt með velferð. Um leið standi yfir tiltekt í loftslagsmálum og markvissari vernd líffræðilegrar fjölbreytni og náttúru. Ríkisstjórnin hafi lofað því í stjórnarsáttmála sínum að bæta skattskil, loka glufum og fækka undanþágum í skattkerfinu. Hún hafi staðið við að gera skattkerfið almennara þannig að það sama gangi yfir alla. Þá hafi hún lofað að greidd yrðu sanngjörn gjöld fyrir nýtingu þjóðarauðlinda, sem hafi nú verið lögfest. Ríkisstjórnin verði að leita allra raunhæfra leiða Allt sé þetta í samræmi við stefnur Samfylkingarinnar og áherslur flokksins í aðdraganda síðustu kosninga. Stjórn Samfylkingarinnar leggi áherslu á að ríkisstjórnin geri allt sem hún getur til að standa við loforð sitt til kjósenda um að lækka kostnað heimila og fyrirtækja. Í því samhengi dugi ekki að reka öfluga velferðarpólitík og ábyrga ríkisfjármálastefnu heldur verði einnig að horfa til aðgerða sem séu til þess fallnar að auka samkeppni á Íslandi, brjóta upp fákeppni og verja neytendur fyrir tilefnislausum verðhækkunum og óhóflegri álagningu á nauðsynjavöru. Fundurinn brýni fyrir ríkisstjórninni að leita allra raunhæfra leiða til þessa. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Opið um Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði Lundúnafluginu aflýst Skemmtikrafturinn hættur Ríkisstjórnin verði að standa við loforð sín Harðorð í garð flugfélags eftir klúður Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump segir allt ganga vel varðandi Íran Grunur um enn eitt kynferðisbrot í leikskóla Unglingspiltur skar mann í strætó Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur „Ég er harmi slegin“ Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Vilja hætta að rukka á kvöldin Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Leiguverð þarf að hækka töluvert Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Opið um Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði Lundúnafluginu aflýst Skemmtikrafturinn hættur Ríkisstjórnin verði að standa við loforð sín Harðorð í garð flugfélags eftir klúður Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt innanlandsflug í lamasessi til morguns Skjálfti af stærðinni 2,5 við Eldey Hálftíma argaþras á þingi Hátt í 100 björgunarsveitarmenn kallaðir út Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur „Ég er harmi slegin“ Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Vilja hætta að rukka á kvöldin Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Leiguverð þarf að hækka töluvert Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri