Óðinn fjallaði um stöðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í Viðskiptablaðinu sem kom út í gær og fyrsta misserið í forsætisráðherratíð hennar, sem byrjaði alveg hreint ágætlega. Hún á hins vegar ekki sjö dagana sæla nú. Óveðurskýin hrannast upp í efnahagslífinu og þjóðin er að klofna vegna atkvæðagreiðlu um hvort við ætlum í aðlögunarviðræður við Evrópusambandið. Nú síðast í morgun komu tölur sem sýna að verðbólgan er komin í 5,4% og atvinnuleysið var 7,1% í febrúar. Þetta eru skelfilegar tölur. Hér á eftir er byrjunin á pistli Óðins. Mun Evrópusambandið eyðileggja feril Kristrúnar? Kristrún Frostadóttir er líklega sá stjórnmálamaður sem hefur komið af mestu afli og öryggi inn í landsmálin frá því að Davíð Oddsson varð kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins árið 1991. Bæði tóku þau við völdum af óvinsælum vinstristjórnum sem voru búin að koma efnahagslífinu á vondan stað. Skattar voru háir, skuldir voru miklar og verðbólgudraugurinn var á sveimi. Ein fyrstu orð þeirra beggja í embætti voru að það þyrfti að hagræða í ríkisrekstrinum. Kristrún kom á fót hagræðingarnefnd og óskaði eftir tillögum frá almenningi. En ólíkt hafast menn að. Undir forystu Davíðs lækkuðu ríkisútgjöldin árið 1992 um 2,8% á fyrsta fjárlagaári hans samkvæmt ríkisreikningi. Undir forystu Kristrúnar hækkuðu ríkisútgjöldin um 9% árið 2026 samkvæmt fjárlögum. *** Mikil fylgissveifla Það má segja að kosningabarátta Samfylkingarinnar hafi algjörlega misheppnast haustið 2024. Flokkurinn fékk aðeins 20,8% atkvæða eftir að Gallup mældi flokkinn mest með 30,9% vorið áður. Kristrún átti hins vegar mjög góða byrjun sem forsætisráðherra. Hún var létt í lund, skorinorð og með málin á hreinu. Enda fór fylgið á flug. Það fór hæst í 34,7% í júlí 2025 en síðan hefur það minnkað og minnkað og mældist 28,5% í febrúar. Það var fyrir vaxtahækkun og óskaplega vondar atvinnuleysistölur upp á 7,3%. Telja má að fylgisminnkunin eigi sér þrjár meginskýringar. 1) Þrálát verðbólga, háir vextir og atvinnuleysi, 2) miklar skattahækkanir á bíla fyrir venjulegt fólk og 3) Evrópusambands-misskilningurinn. Svo auðvitað margt annað, svo sem Flokkur fólksins, en ráðherrar flokksins nota hvert tækifæri til þess að vera úti að aka, þrátt fyrir ófærðina. Þetta kennir okkur það að fylgi Samfylkingarinnar er kvikt. Í næstu viku birtir Gallup fylgiskönnun sína fyrir mars og allar líkur er á því að fylgi Kristrúnar og Samfylkingarinnar fari niður 25-26%. Þá á Kristrún inni meira fylgistap vegna vaxtahækkunarinnar. Auk þess benti Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á það í Silfrinu á mánudaginn að hugsanlega væri von á annarri hækkun. Hér má sjá fylgi Samfylkingarinnar samkvæmt könnunum Gallup, fylgið í þingkosningunum í nóvember 2024 og spá Óðins næstu mánuði. Óðinn er fastur dálkur í Viðskiptablaðinu og fjallar um viðskipti, efnahagsmál og stjórnmál þegar mikið liggur við. Áskrifendur geta lesið pistilinn í fullri lengd .