Fulltrúi Framsóknarflokks í utanríkismálanefnd Alþingis hefur óskað eftir því að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mæti á fund nefndarinnar og varpi ljósi á samskipti hennar við ráðamenn Evrópusambandsins. Tilefnið er ummæli forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi 16. febrúar þar sem hún sagðist telja, eftir samtöl við háttvirta aðila innan Evrópusambandsins, að hægt sé að semja um eitthvað. Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir að einnig sé farið þess á leit við forsætisráðherra að hún deili minnisblöðum sem liggja eftir fundina með nefndinni. „Það er mikilvægt að allar upplýsingar séu uppi á borðinu varðandi Evrópuvegferð ríkisstjórnarinnar og Framsókn leggur lykiláherslu á gagnsæ vinnubrögð og mikilvægi þess að forsætisráðherra veiti þjóðinni milliliðalaust upplýsingar um þau samtöl sem hún hefur átt við háttsetta embættismenn hjá ESB, ásamt því að birta fundargerðir af þeim fundum.”