- What: Political criticism of the prime minister
- Impact: Public debate on government transparency
Innlent | Morgunblaðið | 28.4.2026 | 10:05 Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Kristrún vill sjálf dæma Daði Már: Kostar um hálfan milljarð Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Evrópuréttur óhjákvæmilegur inngöngu í ESB » Fleiri tengdar fréttir Framsóknarflokkurinn hefur skorað á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra að birta fundargerðir um samtöl ráðherrans við háttsetta aðila innan Evrópusambandsins. Í samtali við Morgunblaðið segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, að fram hafi komið í máli Kristrúnar í óundirbúnum fyrirspurnatíma í febrúar að hún teldi eftir samtöl við háttsetta aðila innan Evrópusambandsins að hægt væri að semja um eitthvað í viðræðum við Evrópusambandið. Segir Lilja að þá sé mikilvægt að fá að spyrja hvaða fundir hafi átt sér stað, með hverjum og hvort fundargerðir liggi fyrir. Ljóst sé að um grundvallarbreytingu sé að ræða í nálgun Kristrúnar sem hafi sagt fyrir kosningar að önnur mál ættu að vera í forgangi og því sé ljóst að eitthvað hafi breytt afstöðu hennar. „Við viljum upplýsta umræðu og hafa allt uppi á borðinu,“ segir Lilja. Spurning um gagnsæi Nefnir hún að Kristrún hafi verið spurð um málið á fundi utanríkismálanefndar í gær af Stefáni Vagni Stefánssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, en ekki hafi komið fram í máli Kristrúnar við hvaða embættismenn hafi verið rætt. Jafnframt hafi Kristrún sagt að sum samtölin hefðu verið óformleg og „kaffibollaspjall“. „Erum við að tala um að það sé kannski kaffispjall sem sé að leiða til þess að forsætisráðherra sé að draga stórar ályktanir um að landslagið sé breytt gagnvart Íslandi? Og er ekki bara eðlilegt að við fáum innsýn í það?“ Þá segir Lilja það vera einhverra ára ferli að fara í aðlögunarviðræður sem fylgi mikil óvissa. Þess vegna skori flokkurinn á forsætisráðherrann að birta öll gögn sem tengjast umræddum fundum. „Mér finnst það bara spurning um gagnsæi og heiðarlega nálgun á viðfangsefnið.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Kristrún vill sjálf dæma Daði Már: Kostar um hálfan milljarð Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Evrópuréttur óhjákvæmilegur inngöngu í ESB » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Breyttar reglur á HM Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki Enginn úr meirihlutanum mætti „Gefðu þig fram áður en málið verður verra“ Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Samgöngutafir eru rándýrar Kristrún vill sjálf dæma Grunur um samverknað Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Samgöngutafir eru rándýrar Dýrkeypt veikindahlutföll Hitinn allt að 16 stigum Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Segir framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Nýjast á mbl.is » Breyttar reglur á HM Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki Enginn úr meirihlutanum mætti „Gefðu þig fram áður en málið verður verra“ Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hrósað fyrir aðlögun að ESB Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir Grunur um samverknað Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Samgöngutafir eru rándýrar Dýrkeypt veikindahlutföll Hitinn allt að 16 stigum Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Segir framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri