Innlent | Morgunblaðið | 28.4.2026 | 5:58 Kristrún vill sjálf dæma Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Daði Már: Kostar um hálfan milljarð Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Evrópuréttur óhjákvæmilegur inngöngu í ESB Hvetur þingmenn til að koma sér saman um spurningu Beint: Kristrún á fundi utanríkismálanefndar » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra áskilur sér eins konar neitunarvald á aðildarsamningi við Evrópusambandið, en hún sagði á opnum fundi utanríkismálanefndar Alþingis í gær, að hún myndi ekki bera aðildarsamning undir þjóðaratkvæði nema hann stæðist kröfur sínar. Fram að þessu hefur ekki annað komið fram en að til aðildar geti aðeins komið með tilhlutan þjóðarinnar í tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum. Fyrst um hvort hefja eigi aðildarviðræður á ný þar sem frá var horfið, en verði af aðildarviðræðum skuli þeim lokið með aðildarsamningi, sem „síðan yrði lagður fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar,“ eins og segir í þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um fyrri þjóðaratkvæðagreiðsluna, sem ráðgerð er í sumar. Frétt af mbl.is Evrópuréttur óhjákvæmilegur inngöngu í ESB Þetta kom fram í inngangsorðum forsætisráðherra á fundi utanríkismálanefndar, en þar sagði hún m.a.: „Ég mun segja já í ágúst, en ég vil líka fá góðan samning. Og ég mun aldrei leggja til samning inn í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu, sem ég hef ekki trú á að treysti fullveldi okkar, sjálfstæði og efnahagslega hagsmuni til lengri tíma.“ Ekki kom fram í orðum Kristrúnar á fundinum á hvaða málefnalegu viðmiðum og mælikvörðum forsætisráðherra hyggst byggja við þetta mat. Breytt aðildarferli Meiru kann þó að skipta að með þessu er mögulegu aðildarferli gerbreytt og ákvarðanir ekki einungis í hendi þjóðarinnar, eins og uppleggið hefur verið til þessa. Rétt er þó að hafa í huga að þjóðaratkvæðagreiðslan er að forminu aðeins leiðbeinandi, þó stjórnmálaflokkar hafi sagst ætla að hlíta niðurstöðu hennar. Fræðimenn, sem Morgunblaðið leitaði til, vildu að svo stöddu ekki fjalla um þetta útspil forsætisráðherra og sögðu rétt að ráðherra skýrði nánar hvað í þessu fælist og með hvaða hætti mat hennar færi fram. Frétt af mbl.is Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Einn þeirra benti þó á að það virtist í fljótu bragði ekki í góðu samræmi við umsögn Feneyjanefndar Evrópuráðsins um þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu, en þar hefði mikil áhersla verið lögð á skýrleika ferlisins og fyrirsjáanleika fyrir kjósendur, að þeim væri fyllilega ljóst hvaða afleiðingar atkvæði þeirra hefði. Ekki var að sjá að þessi yfirlýsing vekti sérstaka athygli á fundi utanríkismálanefndar, að minnsta kosti var ekkert um hana spurt á fundinum. Frétt af mbl.is Hvetur þingmenn til að koma sér saman um spurningu Af samtölum við nefndarmenn í gær að dæma höfðu þó a.m.k. einhverjir þeirra veitt þessum orðum ráðherra athygli, en þeir voru ekki á einu máli um þýðingu þeirra. Einn stjórnarandstæðinga taldi þó ljóst ferlið væri í uppnámi, hvort sem það væri fyrir afglöp eða af ásettu ráði. Á fundi utanríkismálanefndar kom margt fleira fram, svo sem að Kristrún telur augljóst að Evrópuréttur muni gilda á Íslandi ef af aðild verður. Hins vegar myndi ríkisstjórnin nota aðildarviðræðurnar til þess að reyna að breyta Evrópuréttinum um mikilsverða íslenska hagsmuni. Nánar má lesa um málið á bls.4 í Morgunblaðinu í dag Tengdar fréttir Ísland og ESB Daði Már: Kostar um hálfan milljarð Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Evrópuréttur óhjákvæmilegur inngöngu í ESB Hvetur þingmenn til að koma sér saman um spurningu Beint: Kristrún á fundi utanríkismálanefndar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hitinn allt að 16 stigum Samgöngutafir eru rándýrar Schumacher aldrei jafn hamingjusamur Ertu að næra sogæðakerfið nóg? Kristrún vill sjálf dæma Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Maðurinn fannst látinn við Háafoss Hvetur þingmenn til að koma sér saman um spurningu Höfnin er lífæð bæjarfélagsins Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Minnast Íslendingsins í Danmörku Myndskeið: „Ég ætla ekki að fara út í það neitt nánar“ Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Nýjast á mbl.is » Hitinn allt að 16 stigum Samgöngutafir eru rándýrar Schumacher aldrei jafn hamingjusamur Ertu að næra sogæðakerfið nóg? Kristrún vill sjálf dæma Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Vindhviður yfir 30 metrar á sekúndu Hvetur þingmenn til að koma sér saman um spurningu Leita að manni við Háafoss Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Minnast Íslendingsins í Danmörku Myndskeið: „Ég ætla ekki að fara út í það neitt nánar“ Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri