Innlent | mbl | 21.3.2026 | 12:25 Kristrún kýs „já“ í ágúst Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á fundinum í dag. mbl.is/Anton Brink Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál Aðhaldsstig aukið verulega Guðrún vill fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni » Fleiri tengdar fréttir „En ég mun segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi, sem gæti orðið fyrri þjóðaratkvæðagreiðslan af tveimur.“ Þetta sagði Kristrún Frostadóttir í ræðu sinni á flokksráðsfundi Samfylkingarinnar í Austurbæjarbíó í Reykjavík í dag og uppskar mikið lófatak. „Ég held að það geti verið gluggi núna fyrir Ísland til að nýta tækifærin sem geta falist í þeirri stöðu sem nú er uppi í Evrópu og í alþjóðamálunum. Og ég tel að við ættum að minnsta kosti að halda því opnu að kanna nánar kostina sem kunna að felast í aðild að Evrópusambandinu,“ sagði hún. Fari síðari atkvæðagreiðslan fram kjósi hún ekki já nema tekist hafi að landa góðum samningi fyrir Ísland, sem tryggir hagsmuni okkar og fullt forræði yfir auðlindum þjóðarinnar. Frá Austurbæjarbíó þar sem fundurinn fer fram. mbl.is/Anton Brink Vildi ekki þjófstarta umræðunni „Ég hef ekki viljað þjófstarta umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna og tel fara best á því að við einbeitum okkur fyrst að sveitarstjórnarkosningunum 16. maí,“ sagði hún. Kristrún segir þjóðina munu hafa nægan tíma í sumar til að vega og meta kosti og galla áframhaldandi aðildarviðræðna, eftir að fólk kemur til baka úr sumarfríi. „Ég veit alveg að það eru skiptar skoðanir innan flokksins um það að hversu miklu leyti Samfylkingin á að keyra þessa kosningabaráttu og hvetja fólk til að greiða atkvæði með áframhaldandi viðræðum. “ Kristrún segir þjóðina munu hafa nægan tíma í sumar til að vega og meta kosti og galla áframhaldandi aðildarviðræðna mbl.is/Anton Brink Frétt af mbl.is Sakar Kristrúnu um óheiðarlegan málflutning Hefja þurfi málið ofar flokkspólitík Kristrún segir mál af þessari stærðargráðu eiga að hefja upp fyrir flokkspólitískar átakalínur. Þess vegna sé ágætt að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram þegar þingið er ekki að störfum. „Íslandi mun áfram vegna vel, hvort sem við kjósum að kanna nánar kosti aðildar eða ekki. En það er spennandi tækifæri fyrir þjóðina að fá loksins að greiða atkvæði um þetta,“ sagði hún. „Og ég get allavega fullyrt að ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins mun virða vilja þjóðarinnar í þessu máli. Það er alveg á hreinu. En fróðlegt væri að vita hver afstaða þeirra flokka sem nú eru í stjórnarandstöðu er til þess og hvort að þeir flokkar muni una vilja þjóðarinnar,“ bætti hún við. Frétt af mbl.is Guðrún vill fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni Fögnuðu of snemma Þá ræddi Kristrún einnig þá erfiðu stöðu sem upp er komin í efnahagsmálum hérlendis. „Ég hef verið hreinskilin varðandi efnahagsmálin. Og ég viðurkenni það að síðasta haust, eftir 2% lækkun stýrivaxta á einu ári, 5 vaxtalækkanir í röð og lægstu verðbólgumælingu í 5 ár, þá vorum við vongóð. Og það hefur komið á daginn að við freistuðumst til að fagna of snemma á þeim tímapunkti.“ Hún sagðist ekki gera lítið úr vandanum og að henni dytti það ekki til hugar að hlaupast undan ábyrgð. „Þjóðin veit allra best að þetta getur reynst þrautin þyngri. Og leiðin hefur nú reynst skrykkjóttari en við vonuðum.“ mbl.is/Anton Brink Hún sagði það mikilvægt að missa ekki sjónar á verkefninu og fara ekki á taugum. „Höldum plani. Höldum áfram að laga ríkisfjármálin svo að ríkið sé ekki alltaf að kynda undir verðbólgu og þenslu í hagkerfinu. Þannig tryggjum við að ríkið geri sitt.“ „Eitt er víst, til að svara þeim sem hafa hæst í þórðargleði þessa daga: Það kemur ekki til greina að hverfa aftur til þeirrar efnahagsstjórnar sem færði okkur 10% verðbólgu og 9,25% vexti. Það kemur alls ekki til greina. Og nei, það kemur ekki til greina að dusta rykið af áætlunum fyrri ríkisstjórnar um áframhaldandi hallarekstur ríkisins út þetta ár og það næsta.“ Þá sagði hún mikilvægt að taka ábyrgð á stöðunni og benda ekki endalaust á aðra. Þannig náist markmiðin. Frétt af mbl.is „Þetta er alvarlegt óveðursský“ Dapurleg þróun stjórnarandstöðunnar Kristrún skaut föstum skotum á flokka stjórnarandstöðunnar. „Á meðan hægriflokkarnir í stjórnarandstöðunni hafa hlaupið frá miðjunni og út í jaðarinn. Frá hinum almenna manni út í hugmyndafræðilega mýri, lengst til hægri.“ „Þetta er allt að renna saman. Jafnvel flokkar með glæsta sögu eins og Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Merkilegir flokkar á marga lund, sem gættu þess að fara aldrei of langt frá miðju stjórnmálanna en virðast núna sáttir með að enda í knippi með Miðflokki, alltaf á harðahlaupum á eftir því sem dreifist hraðast á TikTok þann daginn, eða því sem fær flesta þumla á Facebook, og keppast við að úthúða okkur jafnaðarfólki og útiloka jafnvel samstarf við fólk eins og okkur! Það er dapurlegt að fylgjast með þessari þróun.“ Afkastamikil ríkisstjórn Kristrún talaði einnig mikið um störf ríkisstjórnarinnar hingað til. „Á einu ári í ríkisstjórn höfum við dregið úr hvatanum til að safna íbúðum á fáar hendur, lagað hlutdeildarlánakerfið, tekið á Airbnb, tryggt betri nýtingu stofnframlaga og þar með uppbyggingu fleiri almennra íbúða, hafið stórfellda einföldun á byggingarreglugerð og ráðist í umbætur á stjórnsýslu húsnæðismála — svo dæmi séu tekin,“ sagði Kristrún. Þá nefndi hún fastan lífeyri við laun fyrir öryrkja og eldra fólk, hækkað frítekjumark ellilífeyris, hækkaða fæðingarstyrki, lagfæringar á fæðingarorlofskerfinu og betrumbætur á Menntasjóði námsmanna. „Við settum fram kröfu um árangur í orku- og samgöngumálum, sem við höfum sannarlega staðið undir. Því á rúmu ári í ríkisstjórn höfum við höggvið á hnúta í orkumálum um land allt, einfaldað leyfisveitingar, afgreitt rammaáætlun, samþykkt lög um orkuöflunarmarkmið, aukið styrki til jarðhitaleitar og grænmetisræktar og unnið að jöfnun orkukostnaðar milli dreifbýlis og þéttbýlis.“ Hún nefndi stöðuleikaregluna, tiltekt í ríkisrekstri, lækkaðar skuldir ríkisins um 7,5% af landframleiðslu og fjármálaáætlun um hallalaus fjárlög árið 2027. „Margt fleira mætti telja: Fjölgun lögreglumanna. Fjármagn til viðbyggingar við 5 verknámsskóla um land allt. Samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem loks er búið að lögfesta gott fólk.“ Kristrún tók fjölmörg dæmi til viðbótar um verk stjórnarinnar maðal annars á sviði samgöngumála, heilbrigðismála og menningarmála. „Þannig höfum við unnið og þannig vinnum við áfram. Með fólkinu. Í þjónustu þjóðar. Landsmenn geta treyst því að það sem Samfylkingin setur á oddinn fyrir kosningar er sannarlega það sem Samfylkingin framkvæmir eftir kosningar — hvort sem er í landsmálum eða í forystu sveitarfélaga.“ Alma Möller og sonur hennar, Jónas Már Torfason, á fundinum. mbl.is/Anton Brink Frétt af mbl.is Lög um greiðslu almannatrygginga samþykkt Frétt af mbl.is Kristrún: Fólk kemur ekki ef engin er þjónustan Þrjú samvinnuverkefni Hún nefndi þrjú samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga sem Samfylkingin mun leiða til lykta að loknum sveitarstjórnarkosningum, fái hún til þess traust hjá kjósendum. Samvinnuverkefnin snúi að því að lækka kostnað barnafólks, áframhaldandi þjóðarátaki í umönnun eldra fólks og að auðvelda rekstur og uppbyggingu með því að ráðast í markvissa einföldun regluverks til að liðka fyrir framtaki og verðmætasköpun. Frétt af mbl.is 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Takk og áfram gakk „Skilaboð okkar til allra sem geta hugsað sér að leggja okkur lið í þessu verkefni eru skýr: Velkomin í Samfylkinguna. Við höfum verk að vinna. Og saman munum við uppskera ríkulega í þágu lands og þjóðar á næstu árum og áratugum.“ „Kæru vinir. Njótum dagsins saman og eigum opinskáar umræður um landsins gagn og nauðsynjar. Tökum umræðuna og tökumst á en snúum síðan bökum saman í fundarlok og tökum ábyrgð hvert á öðru. Því saman höfum við sigra að sækja — fyrir Ísland. Takk og að sjálfsögðu áfram gakk!“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að lokum. Tengdar fréttir Ísland og ESB Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál Aðhaldsstig aukið verulega Guðrún vill fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kristrún kýs „já“ í ágúst Jafnaði Íslandsmetið aðeins viku seinna Beint: Flokkráðsfundur Sjálfstæðisflokksins Vinir heiðruðu Hjálmar Sorpa lokar á Sævarhöfða Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Maðurinn sem léði Saka vængi Ryksprenging í tómum tanki Byggingin hönnuð til að gefa eftir Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Gestir kvarta undan ólykt Vill gera glæpamönnum lífið leitt „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Næsta lægð nálgast síðdegis Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Búið að opna heiðina Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum N