Innlent | mbl | 9.3.2026 | 18:25 Hart sótt að Kristrúnu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sat fyrri svörum. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Stöðugleikareglan ekki hert á þessu ári Hitafundur í þinginu í dag Íslenska mest töff tungumál í heimi » Fleiri tengdar fréttir Hart var sótt að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra þegar kostur var gefinn á óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Öllum fyrirspurnum var beint að Kristrúnu og snerust þær um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) á ný. Hún var meðal annars spurð hvort málið væri þess virði að kljúfa þjóðina og hvort það væri til marks um að hún treysti sér ekki sjálf til að rétta efnahag landsins af. Frétt af mbl.is Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hvað hefur breyst? Fyrst steig upp í pontu Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðismanna, og spurði Kristrúnu hvað hefði breyst frá því að hún mætti í margumtalað hlaðvarpsviðtal í þættinum Chess After Dark undir lok árs 2024. Í því viðtali sagði Kristrún að aðildarferli að ESB krefðist sterks umboðs og víðtækrar samstöðu í samfélaginu. Guðrún spurði hana því hvað hefði breyst síðan þá. „Umrætt viðtal fór ég í fyrir tveimur árum og hér er spurt hvað hafi breyst. Hér hefur verið mynduð ríkisstjórn þar sem samstaða er, samstaða þriggja flokka um að leita til þjóðarinnar í þessu máli. Um það snýst þessi atkvæðagreiðsla,“ sagði forsætisráðherrann í svari sínu. „Og þessir þrír flokkar, þessi stjórnarmeirihluti, er að efna hér svikið loforð, m.a. flokks hv. þingmanns á sínum tíma og flokka annarra sem hér sitja í minni hluta og eiga nú erfitt með að horfa upp á að þjóðinni sé veitt rödd í þessu máli.“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Karítas Eðlilegt að hafa varann á sér Næsta fyrirspurn kom frá Sigríði Andersen, þingflokksformanni Miðflokksins. Hún spurði Kristrúnu hvort „ávinningur ESB-sinna af því að leggja í þennan leiðangur sem nú á að hefja, sem gera má ráð fyrir að taki mörg ár, sé ekki léttvægur miðað við þær hörðu deilur og úlfúð sem hann mun alveg örugglega hafa í för með sér í okkar annars ágæta og samstillta landi“. Kristrún hóf svar sitt á að þakka Sigríði fyrir málefnalega spurningu. „Ég held að þetta sé einmitt spurningin sem brennur á þjóðinni: Hver er ávinningurinn?“ sagði hún. „Það er eðlilegt að hafa varann á sér í þessu máli. Þjóðin á að hafa fyrirvara í þessu máli en hún á ekki endilega að gefa sér að ekki sé hægt að svara þessum spurningum. Við höfum hins vegar sagt: Við munum virða þjóðina,“ sagði Kristrún. Sigríður Andersen telur víst að málið muni kljúfa þjóðina. mbl.is/Karítas Fórnarkostnaðurinn klofin þjóð Sigríður sneri þá aftur í pontu og sagði Kristrúnu hafa misskilið spurningu sína. „Ég spurði ekki um ávinninginn af málinu. Ég spurði hvort hæstvirtur forsætisráðherra teldi þessa vegferð svara þeim kostnaði sem fylgir því að kljúfa þjóðina.“ Í svari sínu sagði Kristrún að vissulega væri um tilfinningaríkt mál að ræða en að innganga þjóðarinnar í NATO og EES-samstarfið hefði verið það sömuleiðis. „Er það ástæða fyrir því að við ættum ekki að spyrja þjóðina hvað hún vill gera í þessu máli? Ég tel það ekki. En við munum virða skoðanir fólks í þessu máli sem ég veit að innst inni munu að miklu leyti byggja á tilfinningum, og það er líka allt í lagi,“ sagði forsætisráðherrann. Telur ríkisstjórnina skorast undan ábyrgð Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, var þriðji til að ríða á vaðið og spurði hvort það að setja ESB-aðild á dagskrá væri liður í að skorast undan ábyrgð í efnahagsmálum. „Treystir ráðherra sér og sinni ríkisstjórn ekki til að rétta hlut sinn í efnahagsmálum? Á þetta allt að reddast með inngöngu í ESB, þvert á orð hæstvirts ráðherra fyrir kosningar? Ef ekki, ef ráðherra treystir sér og sinni stefnu, til hvers er þá verið að feta þennan veg?“ spurði Ólafur og hélt áfram: „Hvort ætlar þessi ríkisstjórn að koma böndum á efnahagsmálin sjálf og hafa trú á sinni stefnu eða beygja sig undir Evrópudraum Viðreisnar og láta Brussel redda málunum?“ Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Í svari sínu sagðist Kristrún enn vera þeirrar skoðunar að ákvörðun um aðild að ESB eigi ekki að byggja á efnahagsástandinu í landinu. „Þetta er ekki eitthvað sem þú gerir til skamms tíma. Þú gerir þetta til lengri tíma vegna þess að þú ert sammála gildum, sammála því að þú viljir vera í sameiginlegu tollabandalagi. Þú telur þig hafa einhverju til að deila. Eru ókostir? Já, án efa. Eru kostir? Já. Um þetta erum við að reyna að ræða,“ sagði hún. Sleggjan orðin að buffhamri úr birkihríslu Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins, gerði efnahagsástandið einnig að umræðuefni í sinni fyrirspurn. Hann benti á að verðbólga mældist 5,2%, kostnaður landsmanna við opinbera þjónustu hefði hækkað og atvinnuleysi aukist. „Plan forsætisráðherra er ekki að ganga upp. Sleggjan er orðin að buffhamri úr birkihríslu,“ sagði Þórarinn áður en hann spurði: „Ætlar ríkisstjórnin að fara í aðgerðir sem miða að því að lækka verðbólgu eða er forsætisráðherra jafnvel bara búin að kasta handklæðinu inn til Brussel?“ Þórarinn Ingi Pétursson segir sleggju Kristrúnar vera orðna að buffhamri. mbl.is/Eggert Jóhannesson Til að svara þessu ítrekaði Kristrún fyrri svör sín. „Þetta breytir engu fyrir verkefni ríkisstjórnarinnar hverju sinni hvort við förum í þessar aðildarviðræður eða ekki. Það er enginn að vonast eftir jái af því að þá þurfum við ekki að gera neitt annað eða nei vegna þess að það muni redda einhverju öðru. Þetta eru viðvarandi verkefni,“ sagði hún. Forræði eða fullt forræði? Að lokum reið á vaðið samflokksmaður Þórarins, Jóhann Friðrik Friðriksson. Hann spurði út í orðalag í þingsályktunartillögunni um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem segir að meðal grundvallarhagsmuna Íslands sé að „tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og ráðstöfun þeirra.“ „Mér finnst þetta frekar óljóst. Hvað er átt við með forræði? Er þarna verið að tala um mjög svo takmarkaða aðkomu okkar að málum ef við göngum í sambandið?“ velti Jóhann Friðrik fyrir sér. Jóhann Friðrik Friðriksson velti fyrir sér orðalagi tillögunnar. mbl.is/Karítas „Er ekki nær að markmið okkar snúist um að við höfum fullt forræði yfir okkar auðlindum? Því spyr ég hæstvirtan forsætisráðherra: Er hún ekki sammála mér í því að ekkert annað kemur til greina en fullt forræði á auðlindum okkar gagnvart ESB ef við förum í þennan leiðangur?“ Í svari sínu sagði Kristrún skýrt að ákveðin grundvallargildi myndu ráða för yrði farið í samningaviðræður. „Ég ætla ekki að leggja upp í þessari pontu nákvæmt orðalag varðandi slíka samninga,“ sagði hún hins vegar. Tengdar fréttir Ísland og ESB Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Stöðugleikareglan ekki hert á þessu ári Hitafundur í þinginu í dag Íslenska mest töff tungumál í heimi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hart sótt að Kristrúnu Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Allt í rugli og þjálfarinn rekinn Kemur óvænt Arsenal til varnar Snorri: Tók þá ákvörðun mjög snemma Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ótvíræður réttur barna brotinn Trump: „Ég er ekki ánægður með hann“ Heitir nýjum leiðtoga „óhagganlegum stuðningi“ Beint: Olíuverð rýkur upp vegna vegna átakanna Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Sá handtekni starfsmaður verktaka Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Missti stjórn á bílnum vegna hálku Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Hart sótt að Kristrúnu Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Allt í rugli og þjálfarinn rekinn Kemur óvænt Arsenal til varnar Snorri: Tók þá ákvörðun mjög snemma Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sést strax í næstu verðbólgumælingum Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Sá handtekni starfsmaður verktaka Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Missti stjórn á bílnum vegna hálku Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu