Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 10.3.2026 | 5:57 Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra (C) hlustar á gagnrýni Diljár Mistar Einarsdóttur (D) þung á svip, en tók hana þó ekki til sín. mbl.is/Karítas Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Stöðugleikareglan ekki hert á þessu ári » Fleiri tengdar fréttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka ætti upp aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) á ný. Spennan í þingsalnum var nánast áþreifanleg og stuttur þráðurinn í mörgum. Þingfundurinn hófst síðdegis kl. þrjú, en stjórnarandstaðan tók þegar í upphafi upp umræðu um fundarstjórn forseta. Frétt af mbl.is Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Þar var sérstaklega að því fundið að utanríkisráðherra hefði ekki virt þingsköp, sem kveða á um að hann skuli kynna meiri háttar utanríkismál fyrir utanríkismálanefnd. Einnig var bent á að málið hefði ekki farið í samráð, eins og kveðið er á um í ríkisstjórnarsamþykkt að verði að gera. Að því loknu var komið að fyrsta dagskrárlið, óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra. Þær beindust allar að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, þar sem hún var m.a. sökuð um að hafa gengið á bak orða sinna í aðdraganda kosninga, en þá sagði hún að Evrópuumræðan væri ótímabær og helst til þess fallin að kljúfa þjóðina. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, minnti á að Kristrún hefði tekið upp þennan sama þráð í áramótaávarpi sínu og spurði hvað hefði breyst síðan, en gaf til kynna að með því vildi ráðherrann hlaupast frá efnahagsörðugleikum. Frétt af mbl.is Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Óhætt er að segja að Kristrún hafi ekki tekið fyrirspurninni vel og svaraði hún fullum hálsi. Hið sama átti raunar við um aðrar fyrirspurnir stjórnarandstöðunnar, þar á meðal þegar Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, spurði hvort Kristrún myndi ekki flytja ræðu við umræðuna, en forsætisráðherra svaraði því ekki. Hnífjöfn staða í könnun Spennan í þingsalnum minnkaði ekki þegar út spurðist að Gallup hefði verið að birta skoðanakönnun, sem sýndi að það var ekki aðeins á Alþingi sem stálin voru stinn. Niðurstaða Gallup er sú að afstaða kjósenda til þess hvort taka eigi upp aðildarviðræður við ESB á ný má heita hnífjöfn. Samkvæmt henni telja 52% að þeir muni samþykkja það í þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar en 48% að þeir muni hafna því. Mjórri getur munurinn vart verið að teknu tilliti til vikmarka og nákvæmni slíkra mælinga, en svo er tæpt misseri til fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu og margt sem kann að hreyfa við fólki á þeim tíma. Í því samhengi er vert að líta til þess að fólk er misvisst í sinni sök. Af þeim 52%, sem segja já er 31% öruggt en 21% líklegt. Á hinn bóginn eru af þeim 48% sem segja nei heil 36% sem segjast örugg, en 12% líkleg. Það kann að gefa vísbendingu um í hvorum hópnum fólk sé líklegra til að skipta um skoðun. Í þingsalnum skipti hins vegar enginn um skoðun, hvorki meðan á þessum snerrum stóð né eftir að málið var loks tekið á dagskrá þegar klukkan var farin að ganga sex. Utanríkisráðherra mælti fyrir tillögunni og tók svo til svara. Forsætisráðherra tók ekki þátt í umræðunni, en þó að stjórnarandstaðan hafi verið atkvæðamest tóku ýmsir stjórnarliðar þátt í umræðunni. Enginn þó úr Flokki fólksins, ekki einu sinni Sigurður Helgi Pálmason 1. varaformaður utanríkismálanefndar, sem þó var, ólíkt flestum flokkssystkinum sínum, í salnum. Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Stöðugleikareglan ekki hert á þessu ári » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Eric Cantona leikur í kvikmynd á Hólmavík Hótar Írönum „miklu, miklu meiri hörku“ Tekur Rubio við stjórnartaumum Hvíta hússins? Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Heitir nýjum leiðtoga „óhagganlegum stuðningi“ Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Segja „samninga­viðræður“ vera villandi hugtak Mest lesið Í gær Í vikunni Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Eric Cantona leikur í kvikmynd á Hólmavík Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Næturvaktin endurvakin í MR Fleiri muni fara á örorku Hart sótt að Kristrúnu Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Sá handtekni starfsmaður verktaka Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Eric Cantona leikur í kvikmynd á Hólmavík Hótar Írönum „miklu, miklu meiri hörku“ Tekur Rubio við stjórnartaumum Hvíta hússins? Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verið er að búa til hærra gólf fyrir hækkun bóta Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk „Ekkert í gangi sem bendir til þess að það styttist í gos“ Beint: Olíuverð rýkur upp vegna vegna átakanna Mest lesið Í gær Í vikunni Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Eric Cantona leikur í kvikmynd á Hólmavík Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Næturvaktin endurvakin í MR Fleiri muni fara á örorku Hart sótt að Kristrúnu Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Sá handtekni starfsmaður verktaka Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason

Share this article